[Talk-is] Tenging stíga og rútun fyrir gangandi og hjólandi
Jóhannes Birgir Jensson
joi at betra.is
Wed Aug 13 18:03:43 UTC 2014
Sýnist að það séu 46 manneskjur og einn botti (archive) á póstlistanum.
Ég var ekki búinn að skoða þetta á wiki.
Það væri frábært að fá hjólaleiðahópinn í gang, ef það væri hægt að
setjast niður með hjólafólki (eru ekki samtök hjólafólks nýstofnuð) og
fara yfir hvernig almennt mat allra er á hvað teljist "stofnbrautir" í
hjólaleiðum og svo hvað eru hliðarbrautir (göngustígar sem tengja saman
og þess háttar).
Ef að slíkur hjólahópur getur náð lendingu þá er frekar einfalt að koma
því á kortið.
Þann 13.8.2014 16:29, skrifaði Arni Davidsson:
> Þurfum við ekki að uppfæra þetta skjal með nýjustu upplýsingum:
> http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways
>
> Hjólaleiðahópur Hliðskjálfs hefur ekkert starfað ennþá. Hverjir mundu
> vilja vera með í honum?
> Mig mundi langa til að hafa fund í byrjun september og fara yfir
> álitaefni og stilla saman strengi svo við séum á sömu blaðsíðu og
> gerum hlutina á svipaðan hátt. Þá væri hægt að uppfæra wiki skjalið
> með nákvæmari leiðbeiningum í kjölfarið.
>
> Sem sagt hverjir vilja vera með?
>
> p.s. Hversu margir eru áskrifendur á talk.is <http://talk.is>??
>
> kveðja
> Árni
>
>
>
>
>
>
>
> 2014-08-12 19:33 GMT+00:00 Jóhannes Birgir Jensson <joi at betra.is
> <mailto:joi at betra.is>>:
>
> Já ég held, að svo stöddu, að þetta sé besta lausnin. Pössum
> auðvitað upp á að allir sértækir hjólastígar séu merktir inn
> sérstaklega.
>
> http://cycle.travel/map er nýtt dæmi með rútun, þeir hafa ekki
> sett Ísland inn en það ætti að vera auðvelt - ég ætlaði að hafa
> samband aftur við þá þegar höfuðborgarsvæðið væri orðið aðeins betra.
>
> Var að prófa hvernig rútunin virkar hjá þeim með því að velja tvo
> staði á kortinu, fór fyrstu beygjurnar á hjólastíg, svo vísað á
> umferðargötu, aftur á hjólastíg, götu og endaði á hjólastíg.
>
> --Jói
>
>
> Þann 12.8.2014 15:31, skrifaði Arni Davidsson:
>> Takk fyrir þetta.
>>
>> Er lausnin þá að láta hjólaleiðir liggja um vegi og um sérstaka
>> hjólastíga en ef slíkar leiðir eru ekki finnanlegar þá er sett
>> bicycle=yes á foot path líka til að tengja?
>>
>> Ég sendi póst á Ride the city og spurði hversu oft þeir uppfæra
>> gögnin.
>>
>> Er hægt að benda á önnur Open street map kort sem uppfæra oftar
>> en Ride the city og hafa svipaða notkunarmöguleika.
>> http://openrouteservice.org/?lang=en er eitt en er ekki alveg
>> jafn liðlegt að færa upphafs- og endastað.
>>
>> kveðja
>> Árni
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>> 2014-08-11 19:25 GMT+00:00 Jóhannes Birgir Jensson <joi at betra.is
>> <mailto:joi at betra.is>>:
>>
>> Ég er búinn að vera að gera skurk í þessu og þegar
>> RideTheCity uppfærir sig sést að mikið af gangstéttum hverfa
>> sem hjólastígar.
>>
>> Ég er líka búinn að vera að reyna að skilgreina sérstaka
>> hjólaleiðir (Relation Cycle Route) og afraksturinn sést betur
>> á OpenCycleMap sem uppfærir kortið vikulega frá OSM. Nýjar
>> leiðir frá mér þarna eru Kópavogsstígur, Kársnesstígur og svo
>> Elliðaárdalsstígarnir.
>>
>> http://opencyclemap.org/?zoom=12&lat=64.12851&lon=-21.89742&layers=B0000
>>
>> Ég áleit sem svo að best sé að taka bicycle=yes af öllum foot
>> path og svo bætum við þeim á það sem við teldum vera
>> hjólastíga, ekki gangstéttir nema þær geta hins vegar verið
>> hluti hjólaleiða.
>>
>> Þeir sem muna hvernig OpenCycleMap leit út áður muna kannski
>> að það var eiginlega allt í bláum strikum á öllum gangstéttum
>> sem flækti málin frekar en einfaldaði.
>>
>> Nú síðast var ég að skoða tólið sem Strava var að búa til
>> fyrir OSM, þar sem þeir nota hlaupa- og hjólagögnin til að
>> hjálpa OSM að nálgast betur leiðir. Það verður enginn svikinn
>> af þessum fyrirlestri og tólið sem þeir benda á þar
>> svínvirkar, ég var að prófa það.
>> http://stateofthemap.us/session/slide/
>>
>> Ég sakna svo leiða sem þekkjast sem á meðal hjólreiðamanna,
>> til dæmis rakst ég á feril frá fyrrum vinnufélaga sem fór
>> Jaðarinn sagði hann.
>>
>> Það er mýgrútur af tækifærum þarna til að laga og það eru til
>> fleiri tól en RideTheCity sem virðast eitthvað rólegir í að
>> updeita.
>>
>>
>>
>> Þann 11.8.2014 16:26, skrifaði Arni Davidsson:
>>> Sæl
>>>
>>> Á að skrifa hér á ensku frekar en íslensku? Ég byrja
>>> allavega á íslensku.
>>>
>>> Það hefur áður verið minnst á að leiðavalið (routing) fyrir
>>> gangandi og hjólandi sé ekki að ganga sem skyldi í Open
>>> street map. Ástæðan er að hluta til innfærsla á gögnum yfir
>>> stíga frá sveitarfélögunum því í þeim gögnum virðast stígar
>>> oft ekki tengdir yfir götur né við götu. Þannig virkar
>>> leiðavalið ekki vegna þess að stígar eru einfaldlega ekki
>>> tengdir. Það er fyrirsjáanlegt að það er talsverð vinna að
>>> tengja stígana. Sjá t.d. það sem gerist hér að neðan í
>>> ridethecity og hvernig gögnin líta út í openstreetmap og í
>>> borgarvefsjá:
>>>
>>> http://is.ridethecity.com/#3655489
>>> http://www.openstreetmap.org/#map=17/64.14255/-21.90141&layers=C
>>> http://borgarvefsja.reykjavik.is/borgarvefsja/?_ga=1.45753188.1365589408.1360679825
>>>
>>> Það er spurning hvort stígagögn sveitarfélaganna hafi ekki
>>> verið hálfgerður bjarnargreiði frá þessum sjónarhóli en
>>> spurningin er hvernig á að laga þetta? Á bara að hella sér í
>>> að tengja stíga við götur og yfir götur þar sem um þverun er
>>> að ræða. Eins og þið sjáið í Hátúni er fullt af þverunum og
>>> meira að segja þveranir á gangbrautarljósum á Laugavegi koma
>>> ekki fram í Openstreetmap.
>>>
>>> Einhverjar snjalla hugmyndir?
>>>
>>> kveðja
>>> Árni Davíðsson
>>>
>>>
>>>
>>> --
>>> Árni Davíðsson
>>> arnid65 at gmail.com <mailto:arnid65 at gmail.com>
>>>
>>>
>>> _______________________________________________
>>> Talk-is mailing list
>>> Talk-is at openstreetmap.org <mailto:Talk-is at openstreetmap.org>
>>> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>
>>
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is at openstreetmap.org <mailto:Talk-is at openstreetmap.org>
>> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>
>>
>>
>>
>> --
>> Árni Davíðsson
>> arnid65 at gmail.com <mailto:arnid65 at gmail.com>
>>
>>
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is at openstreetmap.org <mailto:Talk-is at openstreetmap.org>
>> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org <mailto:Talk-is at openstreetmap.org>
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
>
>
>
> --
> Árni Davíðsson
> arnid65 at gmail.com <mailto:arnid65 at gmail.com>
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20140813/6f2525f7/attachment-0001.html>
More information about the Talk-is
mailing list