[Talk-is] Tenging stíga og rútun fyrir gangandi og hjólandi
Jóhannes Birgir Jensson
joi at betra.is
Wed Aug 13 20:19:49 UTC 2014
Svo er Strava með annað sniðugt - það er hægt að tilkynna vandamál í
Strava og þau birtast hér.
http://labs.strava.com/routing-errors/#10000000/12/-21.88528/64.13128
Þann 13.8.2014 18:03, skrifaði Jóhannes Birgir Jensson:
> Sýnist að það séu 46 manneskjur og einn botti (archive) á póstlistanum.
>
> Ég var ekki búinn að skoða þetta á wiki.
>
> Það væri frábært að fá hjólaleiðahópinn í gang, ef það væri hægt að
> setjast niður með hjólafólki (eru ekki samtök hjólafólks nýstofnuð) og
> fara yfir hvernig almennt mat allra er á hvað teljist "stofnbrautir" í
> hjólaleiðum og svo hvað eru hliðarbrautir (göngustígar sem tengja
> saman og þess háttar).
>
> Ef að slíkur hjólahópur getur náð lendingu þá er frekar einfalt að
> koma því á kortið.
>
> Þann 13.8.2014 16:29, skrifaði Arni Davidsson:
>> Þurfum við ekki að uppfæra þetta skjal með nýjustu upplýsingum:
>> http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways
>>
>> Hjólaleiðahópur Hliðskjálfs hefur ekkert starfað ennþá. Hverjir mundu
>> vilja vera með í honum?
>> Mig mundi langa til að hafa fund í byrjun september og fara yfir
>> álitaefni og stilla saman strengi svo við séum á sömu blaðsíðu og
>> gerum hlutina á svipaðan hátt. Þá væri hægt að uppfæra wiki skjalið
>> með nákvæmari leiðbeiningum í kjölfarið.
>>
>> Sem sagt hverjir vilja vera með?
>>
>> p.s. Hversu margir eru áskrifendur á talk.is <http://talk.is>??
>>
>> kveðja
>> Árni
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>>
>> 2014-08-12 19:33 GMT+00:00 Jóhannes Birgir Jensson <joi at betra.is
>> <mailto:joi at betra.is>>:
>>
>> Já ég held, að svo stöddu, að þetta sé besta lausnin. Pössum
>> auðvitað upp á að allir sértækir hjólastígar séu merktir inn
>> sérstaklega.
>>
>> http://cycle.travel/map er nýtt dæmi með rútun, þeir hafa ekki
>> sett Ísland inn en það ætti að vera auðvelt - ég ætlaði að hafa
>> samband aftur við þá þegar höfuðborgarsvæðið væri orðið aðeins betra.
>>
>> Var að prófa hvernig rútunin virkar hjá þeim með því að velja tvo
>> staði á kortinu, fór fyrstu beygjurnar á hjólastíg, svo vísað á
>> umferðargötu, aftur á hjólastíg, götu og endaði á hjólastíg.
>>
>> --Jói
>>
>>
>> Þann 12.8.2014 15:31, skrifaði Arni Davidsson:
>>> Takk fyrir þetta.
>>>
>>> Er lausnin þá að láta hjólaleiðir liggja um vegi og um sérstaka
>>> hjólastíga en ef slíkar leiðir eru ekki finnanlegar þá er sett
>>> bicycle=yes á foot path líka til að tengja?
>>>
>>> Ég sendi póst á Ride the city og spurði hversu oft þeir uppfæra
>>> gögnin.
>>>
>>> Er hægt að benda á önnur Open street map kort sem uppfæra oftar
>>> en Ride the city og hafa svipaða notkunarmöguleika.
>>> http://openrouteservice.org/?lang=en er eitt en er ekki alveg
>>> jafn liðlegt að færa upphafs- og endastað.
>>>
>>> kveðja
>>> Árni
>>>
>>>
>>>
>>>
>>>
>>>
>>>
>>> 2014-08-11 19:25 GMT+00:00 Jóhannes Birgir Jensson <joi at betra.is
>>> <mailto:joi at betra.is>>:
>>>
>>> Ég er búinn að vera að gera skurk í þessu og þegar
>>> RideTheCity uppfærir sig sést að mikið af gangstéttum hverfa
>>> sem hjólastígar.
>>>
>>> Ég er líka búinn að vera að reyna að skilgreina sérstaka
>>> hjólaleiðir (Relation Cycle Route) og afraksturinn sést
>>> betur á OpenCycleMap sem uppfærir kortið vikulega frá OSM.
>>> Nýjar leiðir frá mér þarna eru Kópavogsstígur, Kársnesstígur
>>> og svo Elliðaárdalsstígarnir.
>>>
>>> http://opencyclemap.org/?zoom=12&lat=64.12851&lon=-21.89742&layers=B0000
>>>
>>> Ég áleit sem svo að best sé að taka bicycle=yes af öllum
>>> foot path og svo bætum við þeim á það sem við teldum vera
>>> hjólastíga, ekki gangstéttir nema þær geta hins vegar verið
>>> hluti hjólaleiða.
>>>
>>> Þeir sem muna hvernig OpenCycleMap leit út áður muna kannski
>>> að það var eiginlega allt í bláum strikum á öllum
>>> gangstéttum sem flækti málin frekar en einfaldaði.
>>>
>>> Nú síðast var ég að skoða tólið sem Strava var að búa til
>>> fyrir OSM, þar sem þeir nota hlaupa- og hjólagögnin til að
>>> hjálpa OSM að nálgast betur leiðir. Það verður enginn
>>> svikinn af þessum fyrirlestri og tólið sem þeir benda á þar
>>> svínvirkar, ég var að prófa það.
>>> http://stateofthemap.us/session/slide/
>>>
>>> Ég sakna svo leiða sem þekkjast sem á meðal hjólreiðamanna,
>>> til dæmis rakst ég á feril frá fyrrum vinnufélaga sem fór
>>> Jaðarinn sagði hann.
>>>
>>> Það er mýgrútur af tækifærum þarna til að laga og það eru
>>> til fleiri tól en RideTheCity sem virðast eitthvað rólegir í
>>> að updeita.
>>>
>>>
>>>
>>> Þann 11.8.2014 16:26, skrifaði Arni Davidsson:
>>>> Sæl
>>>>
>>>> Á að skrifa hér á ensku frekar en íslensku? Ég byrja
>>>> allavega á íslensku.
>>>>
>>>> Það hefur áður verið minnst á að leiðavalið (routing) fyrir
>>>> gangandi og hjólandi sé ekki að ganga sem skyldi í Open
>>>> street map. Ástæðan er að hluta til innfærsla á gögnum yfir
>>>> stíga frá sveitarfélögunum því í þeim gögnum virðast stígar
>>>> oft ekki tengdir yfir götur né við götu. Þannig virkar
>>>> leiðavalið ekki vegna þess að stígar eru einfaldlega ekki
>>>> tengdir. Það er fyrirsjáanlegt að það er talsverð vinna að
>>>> tengja stígana. Sjá t.d. það sem gerist hér að neðan í
>>>> ridethecity og hvernig gögnin líta út í openstreetmap og í
>>>> borgarvefsjá:
>>>>
>>>> http://is.ridethecity.com/#3655489
>>>> http://www.openstreetmap.org/#map=17/64.14255/-21.90141&layers=C
>>>> http://borgarvefsja.reykjavik.is/borgarvefsja/?_ga=1.45753188.1365589408.1360679825
>>>>
>>>> Það er spurning hvort stígagögn sveitarfélaganna hafi ekki
>>>> verið hálfgerður bjarnargreiði frá þessum sjónarhóli en
>>>> spurningin er hvernig á að laga þetta? Á bara að hella sér
>>>> í að tengja stíga við götur og yfir götur þar sem um þverun
>>>> er að ræða. Eins og þið sjáið í Hátúni er fullt af þverunum
>>>> og meira að segja þveranir á gangbrautarljósum á Laugavegi
>>>> koma ekki fram í Openstreetmap.
>>>>
>>>> Einhverjar snjalla hugmyndir?
>>>>
>>>> kveðja
>>>> Árni Davíðsson
>>>>
>>>>
>>>>
>>>> --
>>>> Árni Davíðsson
>>>> arnid65 at gmail.com <mailto:arnid65 at gmail.com>
>>>>
>>>>
>>>> _______________________________________________
>>>> Talk-is mailing list
>>>> Talk-is at openstreetmap.org <mailto:Talk-is at openstreetmap.org>
>>>> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>>
>>>
>>> _______________________________________________
>>> Talk-is mailing list
>>> Talk-is at openstreetmap.org <mailto:Talk-is at openstreetmap.org>
>>> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>>
>>>
>>>
>>>
>>> --
>>> Árni Davíðsson
>>> arnid65 at gmail.com <mailto:arnid65 at gmail.com>
>>>
>>>
>>> _______________________________________________
>>> Talk-is mailing list
>>> Talk-is at openstreetmap.org <mailto:Talk-is at openstreetmap.org>
>>> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>
>>
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is at openstreetmap.org <mailto:Talk-is at openstreetmap.org>
>> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>
>>
>>
>>
>> --
>> Árni Davíðsson
>> arnid65 at gmail.com <mailto:arnid65 at gmail.com>
>>
>>
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is at openstreetmap.org
>> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20140813/408f3414/attachment-0001.html>
More information about the Talk-is
mailing list