[Talk-is] Tenging stíga og rútun fyrir gangandi og hjólandi

Jóhannes Birgir Jensson joi at betra.is
Thu Aug 14 11:22:44 UTC 2014


Þess má geta að RideTheCity er með mjög gömul gögn. Arnarsmárinn heima 
er bara hálfur á kortinu og ég lagaði hann fyrir meira en ári.

Þann 14.08.2014 11:00, Arni Davidsson reit:
> Þar sem ég er varaformaður Landssamtaka hjólreiðamanna og Morten
> er formaður ætti það að vera hæg heimatökin að segja hvað
> hjólreiðafólki finnst vera aðalleiðir og hvað tengileiðir.
> Strava virðist líka koma að góðu gagni þar eins og þú bendir
> á. Það hjálpar til að finna bestu leiðirnar þegar farið er um
> lengri veg.
> 
> Vandinn er kannski samt meiri en svo. Það vantar kortafólk til að
> breyta kortinu og að það sé gert með samræmdum hætti af þeim
> sem eru að vinna í því. Nú er ég t.d. aðeins búin að vera að
> vinna í kortinu (samt mjög lítið) með því að segja bicycle=yes
> á göngustíga til að bæta leiðaval en þú ert væntanlega búin
> að nema það úr gildi (ég er ekkert sár tek það fram). Ég
> væri til í að vinna meira í þessu og reyna að mennta fleiri til
> að gera það en þá þarf að vera skýrt hvernig verkið á að
> vera unnið. Markmiðið er að sýna hjólaleiðir á Open street map
> og að leiðaleit/rútun virki eins og það gerir þegar reyndur
> hjólreiðamaður finnur stystu og bestu leiðina milli tveggja
> staða.
> 
> Við getum heldur ekki ákveðið hvað eru réttar leiðir og hvað
> tengileiðir fyrir alla þótt það sé rétt að skilgreina þær
> eins og þú hefur verið að gera með "Relation cycle route". Það
> þarf líka að vera hægt að finna réttar leiðir á styttri
> vegalengdum. Það virðast að einhverju leyti háð
> vefsíðu/rútnarvél en sennilega er mest um það að einhverjar
> tengingar vantar og núna að tengingar vantar um gangstéttir sem
> samkvæmt hefð eru notuð af hjólreiðafólki til að hjóla á. Ég
> ætla að sýna dæmi frá tvemur mismunandi leiðaleitavélum úr
> Hlíðunum:
> 
> http://is.ridethecity.com/iceland#3661323 [12]
> Hjólandi og gangandi mynd úr http://openrouteservice.org/?lang=en
> [6]
> 
> Þarna vantar væntanlega að skilgreina gangstéttir sem bicycle=yes
> því ekki getum við sagt að leyfilegt sé að hjóla á móti
> einstefnu þótt það sé það sem flestir reyndir hjólreiðamenn
> gera vegna þess að þannig eru þeir öruggastir í umferðinni.
> Það væri þá hægt að segja t.d. að aðeins ein gangstétt sé
> bicycle=yes í gegnum Hliðarnar til að opna þar tengingu (þótt
> hjóla megi á þeim öllum). Reyndar vantar líka að tengja
> gangbrautir og þveranir yfir Lönguhlíð til að þetta virki sbr.
> mynd fyrir gangandi. Það þarf síðan líka að hugsa leiðaleitina
> fyrir gangandi sem er mjög háð því að þveranir séu yfir
> götur. Varðandi gangstéttagögnin væri kannski fljótlegast að
> skilgreina götur með einhverju tagi sem segir að gangstétt sé
> meðfram götu öðru megin eða báðu megin og láta
> gangstéttagögnin lönd og leið??? Þau virðast skapa fleiri
> vandamál en þau leysa.
> 
> Þannig er fullt af tengingum sem vantar til að leiðaleit/rútun
> virki sem skyldi. Það er samt jákvætt hvað gengur vel að finna
> staði núna því flest húsnúmer og götur eru komnar inn þannig
> að fólk ætti auðveldlega að geta fundið þá staði sem það
> ætlar á. Flest allir stígar og gangstéttir eru líka á kortinu
> þannig að oft ætti það að geta áttað sig á betri leiðum
> þegar leiðaleitin virkar ekki sem skyldi.
> 
> kveðja
> 
> Árni
> 
> 2014-08-13 20:19 GMT+00:00 Jóhannes Birgir Jensson <joi at betra.is>:
> 
>> Svo er Strava með annað sniðugt - það er hægt að tilkynna
>> vandamál í Strava og þau birtast hér.
>> 
>> 
> http://labs.strava.com/routing-errors/#10000000/12/-21.88528/64.13128
>> [2]
>> 
>> Þann 13.8.2014 18:03, skrifaði Jóhannes Birgir Jensson:
>> 
>> Sýnist að það séu 46 manneskjur og einn botti (archive) á
>> póstlistanum.
>> 
>> Ég var ekki búinn að skoða þetta á wiki.
>> 
>> Það væri frábært að fá hjólaleiðahópinn í gang, ef það
>> væri hægt að setjast niður með hjólafólki (eru ekki samtök
>> hjólafólks nýstofnuð) og fara yfir hvernig almennt mat allra er
>> á hvað teljist "stofnbrautir" í hjólaleiðum og svo hvað eru
>> hliðarbrautir (göngustígar sem tengja saman og þess háttar).
>> 
>> Ef að slíkur hjólahópur getur náð lendingu þá er frekar
>> einfalt að koma því á kortið.
>> 
>> Þann 13.8.2014 16:29, skrifaði Arni Davidsson:
>> 
>> Þurfum við ekki að uppfæra þetta skjal með nýjustu
>> upplýsingum:
>> 
>> http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways [3]
>> 
>> Hjólaleiðahópur Hliðskjálfs hefur ekkert starfað ennþá.
>> Hverjir mundu vilja vera með í honum?
>> 
>> Mig mundi langa til að hafa fund í byrjun september og fara yfir
>> álitaefni og stilla saman strengi svo við séum á sömu
>> blaðsíðu og gerum hlutina á svipaðan hátt. Þá væri hægt
>> að uppfæra wiki skjalið með nákvæmari leiðbeiningum í
>> kjölfarið.
>> 
>> Sem sagt hverjir vilja vera með?
>> 
>> p.s. Hversu margir eru áskrifendur á talk.is [4]??
>> 
>> kveðja
>> 
>> Árni
>> 
>> 2014-08-12 19:33 GMT+00:00 Jóhannes Birgir Jensson <joi at betra.is>:
>> 
>> Já ég held, að svo stöddu, að þetta sé besta lausnin.
>> Pössum auðvitað upp á að allir sértækir hjólastígar séu
>> merktir inn sérstaklega.
>> 
>> http://cycle.travel/map [5] er nýtt dæmi með rútun, þeir hafa
>> ekki sett Ísland inn en það ætti að vera auðvelt - ég
>> ætlaði að hafa samband aftur við þá þegar
>> höfuðborgarsvæðið væri orðið aðeins betra.
>> 
>> Var að prófa hvernig rútunin virkar hjá þeim með því að
>> velja tvo staði á kortinu, fór fyrstu beygjurnar á hjólastíg,
>> svo vísað á umferðargötu, aftur á hjólastíg, götu og
>> endaði á hjólastíg.
>> 
>> --Jói
>> 
>> Þann 12.8.2014 15:31, skrifaði Arni Davidsson:
>> 
>> Takk fyrir þetta.
>> 
>> Er lausnin þá að láta hjólaleiðir liggja um vegi og um
>> sérstaka hjólastíga en ef slíkar leiðir eru ekki finnanlegar
>> þá er sett bicycle=yes á foot path líka til að tengja?
>> 
>> Ég sendi póst á Ride the city og spurði hversu oft þeir
>> uppfæra gögnin.
>> 
>> Er hægt að benda á önnur Open street map kort sem uppfæra
>> oftar en Ride the city og hafa svipaða notkunarmöguleika.
>> http://openrouteservice.org/?lang=en [6] er eitt en er ekki alveg
>> jafn liðlegt að færa upphafs- og endastað.
>> 
>> kveðja
>> Árni
>> 
>> 2014-08-11 19:25 GMT+00:00 Jóhannes Birgir Jensson <joi at betra.is>:
>> 
>> Ég er búinn að vera að gera skurk í þessu og þegar
>> RideTheCity uppfærir sig sést að mikið af gangstéttum hverfa
>> sem hjólastígar.
>> 
>> Ég er líka búinn að vera að reyna að skilgreina sérstaka
>> hjólaleiðir (Relation Cycle Route) og afraksturinn sést betur á
>> OpenCycleMap sem uppfærir kortið vikulega frá OSM. Nýjar leiðir
>> frá mér þarna eru Kópavogsstígur, Kársnesstígur og svo
>> Elliðaárdalsstígarnir.
>> 
>> 
> http://opencyclemap.org/?zoom=12&lat=64.12851&lon=-21.89742&layers=B0000
>> [7]
>> 
>> Ég áleit sem svo að best sé að taka bicycle=yes af öllum foot
>> path og svo bætum við þeim á það sem við teldum vera
>> hjólastíga, ekki gangstéttir nema þær geta hins vegar verið
>> hluti hjólaleiða.
>> 
>> Þeir sem muna hvernig OpenCycleMap leit út áður muna kannski
>> að það var eiginlega allt í bláum strikum á öllum
>> gangstéttum sem flækti málin frekar en einfaldaði.
>> 
>> Nú síðast var ég að skoða tólið sem Strava var að búa til
>> fyrir OSM, þar sem þeir nota hlaupa- og hjólagögnin til að
>> hjálpa OSM að nálgast betur leiðir. Það verður enginn svikinn
>> af þessum fyrirlestri og tólið sem þeir benda á þar
>> svínvirkar, ég var að prófa það.
>> http://stateofthemap.us/session/slide/ [8]
>> 
>> Ég sakna svo leiða sem þekkjast sem á meðal hjólreiðamanna,
>> til dæmis rakst ég á feril frá fyrrum vinnufélaga sem fór
>> Jaðarinn sagði hann.
>> 
>> Það er mýgrútur af tækifærum þarna til að laga og það eru
>> til fleiri tól en RideTheCity sem virðast eitthvað rólegir í
>> að updeita.
>> 
>> Þann 11.8.2014 16:26, skrifaði Arni Davidsson:
>> 
>> Sæl
>> 
>> Á að skrifa hér á ensku frekar en íslensku? Ég byrja allavega
>> á íslensku.
>> 
>> Það hefur áður verið minnst á að leiðavalið (routing)
>> fyrir gangandi og hjólandi sé ekki að ganga sem skyldi í Open
>> street map. Ástæðan er að hluta til innfærsla á gögnum yfir
>> stíga frá sveitarfélögunum því í þeim gögnum virðast
>> stígar oft ekki tengdir yfir götur né við götu. Þannig virkar
>> leiðavalið ekki vegna þess að stígar eru einfaldlega ekki
>> tengdir. Það er fyrirsjáanlegt að það er talsverð vinna að
>> tengja stígana. Sjá t.d. það sem gerist hér að neðan í
>> ridethecity og hvernig gögnin líta út í openstreetmap og í
>> borgarvefsjá:
>> 
>> http://is.ridethecity.com/#3655489 [9]
>> http://www.openstreetmap.org/#map=17/64.14255/-21.90141&layers=C
>> [10]
>> 
> http://borgarvefsja.reykjavik.is/borgarvefsja/?_ga=1.45753188.1365589408.1360679825
>> [11]
>> 
>> Það er spurning hvort stígagögn sveitarfélaganna hafi ekki
>> verið hálfgerður bjarnargreiði frá þessum sjónarhóli en
>> spurningin er hvernig á að laga þetta? Á bara að hella sér í
>> að tengja stíga við götur og yfir götur þar sem um þverun er
>> að ræða. Eins og þið sjáið í Hátúni er fullt af þverunum
>> og meira að segja þveranir á gangbrautarljósum á Laugavegi koma
>> ekki fram í Openstreetmap.
>> 
>> Einhverjar snjalla hugmyndir?
>> 
>> kveðja
>> 
>> Árni Davíðsson
>> 
>> --
>> Árni Davíðsson
>> arnid65 at gmail.com
>> 
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is at openstreetmap.org
>> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]
>> 
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is at openstreetmap.org
>> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]
> 
>  --
>  Árni Davíðsson
>  arnid65 at gmail.com
> 
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]
> 
>  _______________________________________________
>  Talk-is mailing list
>  Talk-is at openstreetmap.org
>  https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]
> 
>  --
>  Árni Davíðsson
>  arnid65 at gmail.com
> 
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]
> 
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]
> 
> _______________________________________________
>  Talk-is mailing list
>  Talk-is at openstreetmap.org
>  https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]
> 
> --
> Árni Davíðsson
> arnid65 at gmail.com
> 
> 
> Links:
> ------
> [1] https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
> [2] 
> http://labs.strava.com/routing-errors/#10000000/12/-21.88528/64.13128
> [3] http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways
> [4] http://talk.is
> [5] http://cycle.travel/map
> [6] http://openrouteservice.org/?lang=en
> [7]
> http://opencyclemap.org/?zoom=12&lat=64.12851&lon=-21.89742&layers=B0000
> [8] http://stateofthemap.us/session/slide/
> [9] http://is.ridethecity.com/#3655489
> [10] 
> http://www.openstreetmap.org/#map=17/64.14255/-21.90141&layers=C
> [11]
> http://borgarvefsja.reykjavik.is/borgarvefsja/?_ga=1.45753188.1365589408.1360679825
> [12] http://is.ridethecity.com/iceland#3661323
> 
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is



More information about the Talk-is mailing list