[Talk-is] Tenging stíga og rútun fyrir gangandi og hjólandi

Jóhannes Birgir Jensson joi at betra.is
Thu Aug 14 11:17:19 UTC 2014


Sæll Árni.

Ég er alveg sammála að það er best að mynda stefnu um þetta. Það var 
búið að kvarta yfir því að með því að merkja allar gangstéttir sem 
bicycle=yes þá væri ómögulegt að horfa lengur á OpenCycleMap og reyna að 
sjá hvar væru göngu- og hjólastígar.

Við þurfum líka að skoða hvaða rútunarleiðavefir eru í gangi og hvaða 
aðferðafræði þeir nota, cycle.travel er ófeimið við að smella 
reiðhjólamönnum á götur sýndist mér á þessari litlu prufu sem ég gerði 
en aðrar gætu verið ragari við það. Við þurfum að átta okkur á því hvaða 
vél hentar og hvort það þurfi að gera sérlausnir til að þóknast 
einhverri rútun og hvort að það sé þess virði ef svo er.

Kraðakið var orðið það mikið að ég taldi betra einmitt að byrja með 
frekar tómt borð. Hvort að rútunarvélar nota gangstéttir þó að 
bicycle=yes sé ekki á þeim veit ég ekki, það er á örfáum stöðum 
bicycle=no - í þeim tilvikum sem reiðhjólastígur er næsti stígur við 
(Fossvogsdalur t.d.).

Þar sem vantar tengingar á milli gangstétta þá er einfalt að kippa því í 
liðinn - svo fremir sem það er greiðfært yfir götuna ætti tenging að 
vera þar til staðar. Það var ekki augljóst fyrir mér þegar ég byrjaði að 
vinna í OpenStreetMap - við viljum endilega fjölga leiðbeiningum fyrir 
notendur OpenStreetMap - bæði á Wiki á ensku og svo sett inn 
greinarstúfa á íslensku á www.hlidskjalf.is .

Það er hægt að merkja að gangstéttar séu við vegi án þess að setja inn 
leiðirnar sérstaklega sem path, sjá 
http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Sidewalk en við höfum ekki skoðað 
þetta mikið.

Ég held að þetta sé einmitt tvíþætt vandamál, annars vegar að skilgreina 
stofnleiðir og þar hjálpar þekking hjólreiðamanna mikið sem og 
Strava-gögn til uppfyllingar. Hins vegar að ákveða hvernig við leysum 
þetta á kortinu. Þetta væri sitthvor hópurinn en þó væntanlega eitthvað 
overlap þarna á milli.

Jói

Þann 14.08.2014 11:00, Arni Davidsson reit:
> Þar sem ég er varaformaður Landssamtaka hjólreiðamanna og Morten
> er formaður ætti það að vera hæg heimatökin að segja hvað
> hjólreiðafólki finnst vera aðalleiðir og hvað tengileiðir.
> Strava virðist líka koma að góðu gagni þar eins og þú bendir
> á. Það hjálpar til að finna bestu leiðirnar þegar farið er um
> lengri veg.
> 
> Vandinn er kannski samt meiri en svo. Það vantar kortafólk til að
> breyta kortinu og að það sé gert með samræmdum hætti af þeim
> sem eru að vinna í því. Nú er ég t.d. aðeins búin að vera að
> vinna í kortinu (samt mjög lítið) með því að segja bicycle=yes
> á göngustíga til að bæta leiðaval en þú ert væntanlega búin
> að nema það úr gildi (ég er ekkert sár tek það fram). Ég
> væri til í að vinna meira í þessu og reyna að mennta fleiri til
> að gera það en þá þarf að vera skýrt hvernig verkið á að
> vera unnið. Markmiðið er að sýna hjólaleiðir á Open street map
> og að leiðaleit/rútun virki eins og það gerir þegar reyndur
> hjólreiðamaður finnur stystu og bestu leiðina milli tveggja
> staða.
> 
> Við getum heldur ekki ákveðið hvað eru réttar leiðir og hvað
> tengileiðir fyrir alla þótt það sé rétt að skilgreina þær
> eins og þú hefur verið að gera með "Relation cycle route". Það
> þarf líka að vera hægt að finna réttar leiðir á styttri
> vegalengdum. Það virðast að einhverju leyti háð
> vefsíðu/rútnarvél en sennilega er mest um það að einhverjar
> tengingar vantar og núna að tengingar vantar um gangstéttir sem
> samkvæmt hefð eru notuð af hjólreiðafólki til að hjóla á. Ég
> ætla að sýna dæmi frá tvemur mismunandi leiðaleitavélum úr
> Hlíðunum:
> 
> http://is.ridethecity.com/iceland#3661323 [12]
> Hjólandi og gangandi mynd úr http://openrouteservice.org/?lang=en
> [6]
> 
> Þarna vantar væntanlega að skilgreina gangstéttir sem bicycle=yes
> því ekki getum við sagt að leyfilegt sé að hjóla á móti
> einstefnu þótt það sé það sem flestir reyndir hjólreiðamenn
> gera vegna þess að þannig eru þeir öruggastir í umferðinni.
> Það væri þá hægt að segja t.d. að aðeins ein gangstétt sé
> bicycle=yes í gegnum Hliðarnar til að opna þar tengingu (þótt
> hjóla megi á þeim öllum). Reyndar vantar líka að tengja
> gangbrautir og þveranir yfir Lönguhlíð til að þetta virki sbr.
> mynd fyrir gangandi. Það þarf síðan líka að hugsa leiðaleitina
> fyrir gangandi sem er mjög háð því að þveranir séu yfir
> götur. Varðandi gangstéttagögnin væri kannski fljótlegast að
> skilgreina götur með einhverju tagi sem segir að gangstétt sé
> meðfram götu öðru megin eða báðu megin og láta
> gangstéttagögnin lönd og leið??? Þau virðast skapa fleiri
> vandamál en þau leysa.
> 
> Þannig er fullt af tengingum sem vantar til að leiðaleit/rútun
> virki sem skyldi. Það er samt jákvætt hvað gengur vel að finna
> staði núna því flest húsnúmer og götur eru komnar inn þannig
> að fólk ætti auðveldlega að geta fundið þá staði sem það
> ætlar á. Flest allir stígar og gangstéttir eru líka á kortinu
> þannig að oft ætti það að geta áttað sig á betri leiðum
> þegar leiðaleitin virkar ekki sem skyldi.
> 
> kveðja
> 
> Árni
> 
> 2014-08-13 20:19 GMT+00:00 Jóhannes Birgir Jensson <joi at betra.is>:
> 
>> Svo er Strava með annað sniðugt - það er hægt að tilkynna
>> vandamál í Strava og þau birtast hér.
>> 
>> 
> http://labs.strava.com/routing-errors/#10000000/12/-21.88528/64.13128
>> [2]
>> 
>> Þann 13.8.2014 18:03, skrifaði Jóhannes Birgir Jensson:
>> 
>> Sýnist að það séu 46 manneskjur og einn botti (archive) á
>> póstlistanum.
>> 
>> Ég var ekki búinn að skoða þetta á wiki.
>> 
>> Það væri frábært að fá hjólaleiðahópinn í gang, ef það
>> væri hægt að setjast niður með hjólafólki (eru ekki samtök
>> hjólafólks nýstofnuð) og fara yfir hvernig almennt mat allra er
>> á hvað teljist "stofnbrautir" í hjólaleiðum og svo hvað eru
>> hliðarbrautir (göngustígar sem tengja saman og þess háttar).
>> 
>> Ef að slíkur hjólahópur getur náð lendingu þá er frekar
>> einfalt að koma því á kortið.
>> 
>> Þann 13.8.2014 16:29, skrifaði Arni Davidsson:
>> 
>> Þurfum við ekki að uppfæra þetta skjal með nýjustu
>> upplýsingum:
>> 
>> http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways [3]
>> 
>> Hjólaleiðahópur Hliðskjálfs hefur ekkert starfað ennþá.
>> Hverjir mundu vilja vera með í honum?
>> 
>> Mig mundi langa til að hafa fund í byrjun september og fara yfir
>> álitaefni og stilla saman strengi svo við séum á sömu
>> blaðsíðu og gerum hlutina á svipaðan hátt. Þá væri hægt
>> að uppfæra wiki skjalið með nákvæmari leiðbeiningum í
>> kjölfarið.
>> 
>> Sem sagt hverjir vilja vera með?
>> 
>> p.s. Hversu margir eru áskrifendur á talk.is [4]??
>> 
>> kveðja
>> 
>> Árni
>> 
>> 2014-08-12 19:33 GMT+00:00 Jóhannes Birgir Jensson <joi at betra.is>:
>> 
>> Já ég held, að svo stöddu, að þetta sé besta lausnin.
>> Pössum auðvitað upp á að allir sértækir hjólastígar séu
>> merktir inn sérstaklega.
>> 
>> http://cycle.travel/map [5] er nýtt dæmi með rútun, þeir hafa
>> ekki sett Ísland inn en það ætti að vera auðvelt - ég
>> ætlaði að hafa samband aftur við þá þegar
>> höfuðborgarsvæðið væri orðið aðeins betra.
>> 
>> Var að prófa hvernig rútunin virkar hjá þeim með því að
>> velja tvo staði á kortinu, fór fyrstu beygjurnar á hjólastíg,
>> svo vísað á umferðargötu, aftur á hjólastíg, götu og
>> endaði á hjólastíg.
>> 
>> --Jói
>> 
>> Þann 12.8.2014 15:31, skrifaði Arni Davidsson:
>> 
>> Takk fyrir þetta.
>> 
>> Er lausnin þá að láta hjólaleiðir liggja um vegi og um
>> sérstaka hjólastíga en ef slíkar leiðir eru ekki finnanlegar
>> þá er sett bicycle=yes á foot path líka til að tengja?
>> 
>> Ég sendi póst á Ride the city og spurði hversu oft þeir
>> uppfæra gögnin.
>> 
>> Er hægt að benda á önnur Open street map kort sem uppfæra
>> oftar en Ride the city og hafa svipaða notkunarmöguleika.
>> http://openrouteservice.org/?lang=en [6] er eitt en er ekki alveg
>> jafn liðlegt að færa upphafs- og endastað.
>> 
>> kveðja
>> Árni
>> 
>> 2014-08-11 19:25 GMT+00:00 Jóhannes Birgir Jensson <joi at betra.is>:
>> 
>> Ég er búinn að vera að gera skurk í þessu og þegar
>> RideTheCity uppfærir sig sést að mikið af gangstéttum hverfa
>> sem hjólastígar.
>> 
>> Ég er líka búinn að vera að reyna að skilgreina sérstaka
>> hjólaleiðir (Relation Cycle Route) og afraksturinn sést betur á
>> OpenCycleMap sem uppfærir kortið vikulega frá OSM. Nýjar leiðir
>> frá mér þarna eru Kópavogsstígur, Kársnesstígur og svo
>> Elliðaárdalsstígarnir.
>> 
>> 
> http://opencyclemap.org/?zoom=12&lat=64.12851&lon=-21.89742&layers=B0000
>> [7]
>> 
>> Ég áleit sem svo að best sé að taka bicycle=yes af öllum foot
>> path og svo bætum við þeim á það sem við teldum vera
>> hjólastíga, ekki gangstéttir nema þær geta hins vegar verið
>> hluti hjólaleiða.
>> 
>> Þeir sem muna hvernig OpenCycleMap leit út áður muna kannski
>> að það var eiginlega allt í bláum strikum á öllum
>> gangstéttum sem flækti málin frekar en einfaldaði.
>> 
>> Nú síðast var ég að skoða tólið sem Strava var að búa til
>> fyrir OSM, þar sem þeir nota hlaupa- og hjólagögnin til að
>> hjálpa OSM að nálgast betur leiðir. Það verður enginn svikinn
>> af þessum fyrirlestri og tólið sem þeir benda á þar
>> svínvirkar, ég var að prófa það.
>> http://stateofthemap.us/session/slide/ [8]
>> 
>> Ég sakna svo leiða sem þekkjast sem á meðal hjólreiðamanna,
>> til dæmis rakst ég á feril frá fyrrum vinnufélaga sem fór
>> Jaðarinn sagði hann.
>> 
>> Það er mýgrútur af tækifærum þarna til að laga og það eru
>> til fleiri tól en RideTheCity sem virðast eitthvað rólegir í
>> að updeita.
>> 
>> Þann 11.8.2014 16:26, skrifaði Arni Davidsson:
>> 
>> Sæl
>> 
>> Á að skrifa hér á ensku frekar en íslensku? Ég byrja allavega
>> á íslensku.
>> 
>> Það hefur áður verið minnst á að leiðavalið (routing)
>> fyrir gangandi og hjólandi sé ekki að ganga sem skyldi í Open
>> street map. Ástæðan er að hluta til innfærsla á gögnum yfir
>> stíga frá sveitarfélögunum því í þeim gögnum virðast
>> stígar oft ekki tengdir yfir götur né við götu. Þannig virkar
>> leiðavalið ekki vegna þess að stígar eru einfaldlega ekki
>> tengdir. Það er fyrirsjáanlegt að það er talsverð vinna að
>> tengja stígana. Sjá t.d. það sem gerist hér að neðan í
>> ridethecity og hvernig gögnin líta út í openstreetmap og í
>> borgarvefsjá:
>> 
>> http://is.ridethecity.com/#3655489 [9]
>> http://www.openstreetmap.org/#map=17/64.14255/-21.90141&layers=C
>> [10]
>> 
> http://borgarvefsja.reykjavik.is/borgarvefsja/?_ga=1.45753188.1365589408.1360679825
>> [11]
>> 
>> Það er spurning hvort stígagögn sveitarfélaganna hafi ekki
>> verið hálfgerður bjarnargreiði frá þessum sjónarhóli en
>> spurningin er hvernig á að laga þetta? Á bara að hella sér í
>> að tengja stíga við götur og yfir götur þar sem um þverun er
>> að ræða. Eins og þið sjáið í Hátúni er fullt af þverunum
>> og meira að segja þveranir á gangbrautarljósum á Laugavegi koma
>> ekki fram í Openstreetmap.
>> 
>> Einhverjar snjalla hugmyndir?
>> 
>> kveðja
>> 
>> Árni Davíðsson
>> 
>> --
>> Árni Davíðsson
>> arnid65 at gmail.com
>> 
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is at openstreetmap.org
>> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]
>> 
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is at openstreetmap.org
>> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]
> 
>  --
>  Árni Davíðsson
>  arnid65 at gmail.com
> 
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]
> 
>  _______________________________________________
>  Talk-is mailing list
>  Talk-is at openstreetmap.org
>  https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]
> 
>  --
>  Árni Davíðsson
>  arnid65 at gmail.com
> 
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]
> 
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]
> 
> _______________________________________________
>  Talk-is mailing list
>  Talk-is at openstreetmap.org
>  https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]
> 
> --
> Árni Davíðsson
> arnid65 at gmail.com
> 
> 
> Links:
> ------
> [1] https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
> [2] 
> http://labs.strava.com/routing-errors/#10000000/12/-21.88528/64.13128
> [3] http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways
> [4] http://talk.is
> [5] http://cycle.travel/map
> [6] http://openrouteservice.org/?lang=en
> [7]
> http://opencyclemap.org/?zoom=12&lat=64.12851&lon=-21.89742&layers=B0000
> [8] http://stateofthemap.us/session/slide/
> [9] http://is.ridethecity.com/#3655489
> [10] 
> http://www.openstreetmap.org/#map=17/64.14255/-21.90141&layers=C
> [11]
> http://borgarvefsja.reykjavik.is/borgarvefsja/?_ga=1.45753188.1365589408.1360679825
> [12] http://is.ridethecity.com/iceland#3661323
> 
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is



More information about the Talk-is mailing list