[Talk-is] Tenging stíga og rútun fyrir gangandi og hjólandi
Arni Davidsson
arnid65 at gmail.com
Thu Aug 21 10:10:19 UTC 2014
Hæ
Já Bristol á Englandi.
Mér sýnist þetta snúast um magn af gögnum. Það eru lítil gögn í Bristol og
þeir fáu stígar sem eru teiknaðir eru einfaldlega tengdir við götu (og gert
ráð fyrir gangstéttum við þær) og svo er rútað eftir götunni fyrir
gangandi.
Stígurinn í þessu tilviki er ekki með bicycle=yes og því ættu hjól að fara
eftir götu skv. þessu:
Rútað fyrir hjól
http://openrouteservice.org/index.php?start=-2.583334,51.466187&end=-2.583152,51.46466&pref=Bicycle&lang=de&noMotorways=false&noTollways=false
Rútað fyrir gangandi
http://openrouteservice.org/index.php?start=-2.583334,51.466187&end=-2.583152,51.46466&pref=Pedestrian&lang=en&noMotorways=false&noTollways=false
Hér er svo annar staður með stíg merktan bicycle=yes og rútað fyrir
gangandi:
http://openrouteservice.org/index.php?start=-2.5838582,51.4671268&end=-2.5810258,51.4675613&pref=Pedestrian&lang=en&noMotorways=false&noTollways=false
og hjólandi:
http://openrouteservice.org/index.php?start=-2.5838582,51.4671268&end=-2.5810258,51.4675613&pref=Bicycle&lang=en&noMotorways=false&noTollways=false
Mér sýnist að við þurfum líklega að:
1. Fyrir gangandi. Annaðhvort að nota merktar gangstéttir fyrir gangandi og
tengja þá allar gangstéttir yfir götur *eða* að eyða út gangstéttum og rúta
eftir götum (þar sem eru gangstéttir). (Í því tilviki væri hægt að halda
inni upplýsingum með því að nota sidewalk=both/left/right/none sem tag við
highway.)
2. Fyrir gangandi. Láta þá stíga sem eru nauðsynlegir og eru ekki við götu
halda sér og tengjast við götu (ef við eyðum gangstéttum) eða við
gangstéttir (ef við höldum gangstéttum og tengjum þær allar yfir götur).
3. Fyrir hjólandi. Rúta eftir götum að jafnaði en setja bicycle=yes við þá
stíga og gangstéttir (ef við höldum þeim) sem eru nauðsynlegir og eðlilegir
sem tengingar fyrir reiðhjól. Sérstakir hjólastígar eru eðlilegur hluti af
leiðum.
Hvað finnst ykkur vera eðlilegasta og einfaldasta leiðin? Eyða gangstéttum
eða tengja þær yfir götur?
kveðja
Árni Davíðsson
2014-08-21 0:16 GMT+00:00 Svavar Kjarrval <svavar at kjarrval.is>:
> Hæ.
>
> Bristol á Englandi?
>
> En annars fæ ég þetta til að virka á openrouteservice.org í Reykjavík
> fyrir fótgangandi og hjólandi. Hér er hjóladæmi í Breiðholtinu þar sem búið
> var að tengja þveranir á sínum tíma:
>
> http://openrouteservice.org/index.php?start=-21.8173057,64.1006776&end=-21.8241862,64.1000975&pref=Bicycle&lang=en&noMotorways=false&noTollways=false
>
> Leiðin gæti þó orðið styttri með meiri gögnum á svæðinu en hér er
> greinilegt að beintengdu stígarnir eru nýttir eftir því sem kostur er.
>
> Með kveðju,
> Svavar Kjarrval
>
>
> On 16/08/14 01:06, arnid65 at gmail.com wrote:
>
> Það sem mér finnst athyglisvert með gögnin frá t.d. Bristol er að routing
> virkar þrátt fyrir að hvorki gangstéttir né þveranir séu skráðar.
> Hversvegna virkar það þar en ekki hjá okkur? Erum við að gera málið alltof
> flókið? Er hægt að skýra þennan mun?
>
> Kveðja
> Árni Davíðsson
>
> On 15.8.2014, at 22:11, Svavar Kjarrval <svavar at kjarrval.is> wrote:
>
> Hæ.
>
> Gallinn við stígagögnin frá Reykjavíkurborg er að þau eru frekar teiknuð
> upp á útlitið en routing. Fyrir okkur var þetta auðvitað ekki
> ákjósanlegasta staðan. Við fengum hins vegar nokkuð tæmandi safn yfir
> stíga, jafnvel stíga sem við myndum líklegast ekki fá af loftmyndunum einum
> saman. Hvað varðar routing gæti þetta verið bjarnargreiði en nokkuð góður
> greiði þegar kemur að því að vita hvar stígar eru og hvar þeir liggja. Með
> Laugaveginn tek ég þetta algerlega á mig, sérstaklega þar sem ég á heima
> þar rétt hjá og hefði auðvitað átt að hafa klárað þetta þar fyrir löngu.
>
> Okkar vantar smá átak til þess að skrá betur gangbrautir og aðrar þveranir
> yfir götur. Tók sjálfur einhver þannig svæði á sínum tíma en hef því miður
> fært áhersluna annað innan OSM. Hef samt tekið nokkuð margar GPS taggaðar
> ljósmyndir af slíkum þverunum í einhverjum gönguferðanna sem ég hef farið.
> Ef einhver hefur áhuga á að skrá þetta í massavís, þá get ég tekið þær
> myndir saman og sent viðkomandi. Margar þverananna sem myndir eru af gætu
> þó verið augljósar út frá loftmyndum.
>
> Hvaða svæði finnst ykkur að ættu að vera í forgangi þegar bæta á við
> þessum tengingum?
>
> Með kveðju,
> Svavar Kjarrval
>
> On 11/08/14 16:26, Arni Davidsson wrote:
>
> Sæl
>
> Á að skrifa hér á ensku frekar en íslensku? Ég byrja allavega á íslensku.
>
> Það hefur áður verið minnst á að leiðavalið (routing) fyrir gangandi og
> hjólandi sé ekki að ganga sem skyldi í Open street map. Ástæðan er að hluta
> til innfærsla á gögnum yfir stíga frá sveitarfélögunum því í þeim gögnum
> virðast stígar oft ekki tengdir yfir götur né við götu. Þannig virkar
> leiðavalið ekki vegna þess að stígar eru einfaldlega ekki tengdir. Það er
> fyrirsjáanlegt að það er talsverð vinna að tengja stígana. Sjá t.d. það sem
> gerist hér að neðan í ridethecity og hvernig gögnin líta út í openstreetmap
> og í borgarvefsjá:
>
>
>
> http://www.openstreetmap.org/#map=17/64.14255/-21.90141&layers=C
>
> http://borgarvefsja.reykjavik.is/borgarvefsja/?_ga=1.45753188.1365589408.1360679825
>
> Það er spurning hvort stígagögn sveitarfélaganna hafi ekki verið
> hálfgerður bjarnargreiði frá þessum sjónarhóli en spurningin er hvernig á
> að laga þetta? Á bara að hella sér í að tengja stíga við götur og yfir
> götur þar sem um þverun er að ræða. Eins og þið sjáið í Hátúni er fullt af
> þverunum og meira að segja þveranir á gangbrautarljósum á Laugavegi koma
> ekki fram í Openstreetmap.
>
> Einhverjar snjalla hugmyndir?
>
> kveðja
> Árni Davíðsson
>
>
>
> --
> Árni Davíðsson
> arnid65 at gmail.com
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing listTalk-is at openstreetmap.orghttps://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing listTalk-is at openstreetmap.orghttps://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
>
--
Árni Davíðsson
arnid65 at gmail.com
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20140821/3994556f/attachment-0001.html>
More information about the Talk-is
mailing list