[Talk-is] Hvarfahverfi í Kópavogi er ekki rétt hnitað

Jóhannes Birgir Jensson joi at betra.is
Thu Oct 30 21:54:28 UTC 2014


Ég sé reyndar að við erum með slatta af stikkprufum inni þegar maður 
skoðar í iD því að Mapillary punktarnir eru þarna inni og þeir benda til 
rúmlega meter hnikunar.

Background - haka við Photo Overlay (Mapillary)


Þann 30.10.2014 21:26, skrifaði Jóhannes Birgir Jensson:
> Ég var að vandræðast í þessu um daginn, það var mismunur á loftmyndum 
> og nýjustu myndirnar virðast hafa hnikast til um hálfan meter sýndist mér.
>
> Ef þú ert með góðar stikkprufur þá er líklega málið að opna hverfið í 
> JOSM, hlaða svo stikkprufunum inn, velja allt hverfið og hnika til þar 
> til stikkprufurnar passa.
>
> Svo þarf bara að laga tengingarnar út úr hverfinu sem eru ekki margar 
> sem betur fer.
>
> Aðrir sem hafa reynslu í svona heilhverfishnikunum endilega leggja 
> sína leið til, ég hef sjaldan hræðst smá brute force en það er kannski 
> ekki alltaf besta leiðin.
>
> --Jói / Stalfur
>
> Þann 30.10.2014 21:01, skrifaði baldvin at baldvin.com:
>>
>> Sæl. Mér sýnist Hvarfa hverfið í Kópavogi ekki rétt hnitað. Var að 
>> taka stikkprufur þar og það munar nógu miklu til að það skiptir máli 
>> ef verið er að nota kortin til að sýna önnur gögn ofan á þeim. Er 
>> þetta eitthvað sem einhver hefur skoðað nýlega og gæti haft skoðun á? 
>> Jafnframt, hefur einhver reynslu af því að leiðrétta svona heilt 
>> hverfi? Ef ég fer að gera þetta í höndum hús fyrir hús og götu fyrir 
>> götu er líklegt að það taki dálítið mikið á að gera það svo vel sé 
>> fyrir umhverfið sem þessu tengist og er rétt hnitað nú þegar. Allar 
>> ábendingar eða hugmyndir eru vel þegnar. Annars skoða ég þetta þegar 
>> ég fæ lausa nokkra klukkutíma.
>>
>> Mbk,
>>
>> Baldvin
>>
>>
>>
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is at openstreetmap.org
>> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20141030/9e750299/attachment.html>


More information about the Talk-is mailing list