[Talk-is] Tillaga að nýjum götulitum

Jóhannes Birgir Jensson joi at betra.is
Wed Aug 12 13:15:08 UTC 2015


Þann 12.08.2015 12:43, Thorir Jonsson reit:
> Þetta lítur vel út. Þetta er fyrir Mapnik renderinguna á osm.is
> [5] er það ekki?

Þetta er ekki að okkar undirlagi en er fyrir Mapnik (nú CartoCSS) 
renderingu á OpenStreetMap.org sem osm.is notar beint.

> Ef þið eru að gera breytingar á því væri gaman að sjá
> renderingu á aeroway=marking líka. Ég er búinn að vera að gera
> smá tilrauna verkefni með að nýta OpenStreetmap í vinnunni (hjá
> Tern Systems - tern.is [6]) og til prufu bætti ég inn taginu
> aeroway=marking til að geta kortlagt merkingar á flug- og akbrautum
> á flugvöllum. Ég notaði Reykjavíkur flugvöll til að prófa
> þetta og það væri gaman að sjá hvernig þetta kæmi út í
> Mapnik renderingu.

Frábært að fá þetta sjónarhorn, það liggur fyrir tillaga um að sýna 
minni flugvelli ekki jafn snemma og nú er gert (grasbalar birtast jafn 
stórir og alþjóðaflugvellir) samkvæmt þessu: 
https://github.com/gravitystorm/openstreetmap-carto/pull/1734

Varðandi það að sýna merkingar þá er það eitthvað sem mætti senda inn 
sem pull request, einhverjir CSS snillingar sem vilja kíkja á CartoCSS.

Ég sjálfur var að prófa að nota OSM tengt vinnunni, og því er nú hægt að 
skoða klósettlosunarstaði á landinu 
http://www.ust.is/library/Skrar/Kort/kort-seyrulosun.html


--Jói



More information about the Talk-is mailing list