[Talk-is] Röng rötun í strætó appinu

Jóhannes Birgir Jensson joi at betra.is
Fri Sep 1 14:00:30 UTC 2017


Flott að heyra.

Erum að skoða að halda vinnustofu með Mapillary núna í september, það 
tengist inn á þetta þó það sé ekki bara um þetta. Ætla að berja saman 
tilkynningu um það um helgina.

Þann 01.09.2017 13:54, Arni Davidsson reit:
> Sæl
> 
> Jón Gunnar Pálsson hefur verið mjög áhugasamur og sent mér
> endurtekið pósta um rötun í Strætó appinu. Hann hefur lika sent
> Svavari póst. Hann virðist hafa áhuga á að hjálpa til við að
> laga þessa rötun fyrir strætó og gæti mögulega tekið þátt í
> grunnvinnunni við OSM.
> 
> Stendur til að boða einhvern fund á næstunni í félaginu sem hann
> gæti verið boðið á? Ef ekki gæti ég staðið fyrir minni fundi
> t.d. á kaffihúsi til að ræða málin. Munduð þið vera tilbúnir
> að hitta hann? Þið þekkið þetta eiginlega mun betur en ég.
> 
> Mér finnst lílka vanta svör við :
> 1) Hvaða fyrirtæki sér um appið hjá Strætó. Mér sýnist
> lítið þýða að ræða við strætó beint um þessi mál.
> 2) Var ekki búið að færa inn stígagögn frá Garðabæ í OSM?
> 
> kveðja
> Árni Davíðsson
> 
> Þann 28. ágúst 2017 kl. 08:40 skrifaði Morten Lange
> <morten7an at yahoo.com>:
> 
>>>> 
>> Áhugavert. Mín snöggviðbrögð:
>> Kortið er ábótavant þarna, en verra er að rötunarvélin
>> virðist haldin þeirri misskilningi að ekki mega ganga eftir
>> götum.
>> 
>> Hæðarbyggð 7/9 : Hér er í þokkabót um götu að ræða sem er
>> merkt (tögguð) residential  :-)
>> (Og svo er þetta nálægt enda botnlanga í ofanálag.)
>> 
>> Annað mál er að auðvelt er að laga einstaka staði í OSM,
>> gefið að einhver staðfesti "ground truth". Framlengja gangstétta
>> og stíga.
>> Eða  hreinlega bæta við óformleg tenging (slóð sem sést á
>> grasi etc)
>> highway=path, informal=yes, visibility=good eða álíka
>> 
>> En aðalmálið í stærri myndinni er að laga rötunarvélina.
>> Gera ráð fyrri að hægt sé að fara af gangstétt / footway og
>> út á götu, amk húsagötur og "sveitavegi"
>> 
>> --
>> Regards / Kveðja / Hilsen Morten Lange
>> 
>> -------------------------
>> FROM: Arni Davidsson <arnid65 at gmail.com>
>> TO: Jóhannes Birgir Jensson <joi at betra.is>; Svavar Kjarrval
>> <svavar at kjarrval.is>; Morten Lange <morten7an at yahoo.com>
>> SENT: Monday, 28 August 2017, 1:25
>> SUBJECT: Röng rötun í strætó appinu
>> 
>> Sælir
>> 
>> Ég fékk eftirfarandi póst vegna rangrar rötunar sem strætó
>> appið gefur. Það virðist vera að nota Open street map.
>> 
>>> Sæll Ég hef sent póst á fulltrúa Garðabæjar, OSM og
>>> strætó. Engin viðbrögð hafa verið. Þú getur fengið afrit
>>> af þeim pósti. Þar er stungið upp á að ræða hvað sé
>>> hægt að bæta við Karlabrautina. Garðabær skipuleggur
>>> göngustíga, OSM setur þá inn í upplýsingakerfi sem strætó
>>> notar og strætó ber ábyrð á að tölvan skili réttum
>>> upplýsingum. Skoðum aðeins að fara frá Hæðarbyggð 9 að
>>> Ásgarði. Ef þú skoðar kort frá OSM, sést að enginn
>>> göngustígur er milli Hæðarbyggðar 9 og 7. Því er farin
>>> lengri leið. Er hægt að laga þetta með því að framlengja
>>> stíginn milli 9 og 7? Ef Garðabær segir að þar sé
>>> göngustígur, þarf OSM að merkja hann inn. Annars ætti kannski
>>> að "búa til" göngustíg þar á milli? Skoðum næst ferð frá
>>> Furulundi 9 að Ásgarði. Ekki er hægt að fara yfir merktan
>>> göngustíg milli biðstöðvanna Heiðarlundur og Furulundur. Í
>>> lokin er farið upp Hæðarbyggðina og er gengið annað hvort
>>> milli Hæðarbyggðar 5 eða 9 að Hæðarbyggð 7. En íbúar
>>> Hæðarbyggðar 5 og 9 geta ekki notað þessa gönguleið. Allir
>>> þrír þurfa að skoða þetta. Ég vil að þú takir þá með
>>> sem þú telur hæfasta. Ekkert skilyrði er að ég sé í
>>> þessum hóp. Ætti þetta að vera afmarkað verkefni, eða hluti
>>> af öllu, sem á að ræða um? Ætti hópurinn að hittast fyrir
>>> fund með strætó? Því næst yrði boðaður fundur með
>>> strætó. Hvað ætti fundarefnið að vera? Kveðja Jón Gunnar
>>> Pálsson
>> 
>> Eru einhverjar skýringar á því hversvegna þetta er svona? Veit
>> einhver hvaða fyrirtæki það er sem býr til strætó appið?
>> 
>> kveðja
>> Árni Davíðsson
>> 
>> --
>> Árni Davíðsson
>> arnid65 at gmail.com
> 
> --
> Árni Davíðsson
> arnid65 at gmail.com



More information about the Talk-is mailing list