[Talk-is] Eyðing gangstétta sem sérleiða

Arni Davidsson arnid65 at gmail.com
Wed Sep 13 00:35:14 UTC 2017


Mér finnst við þurfa að komast til botns í því hvort að það sé til bóta að
hafa gangstéttir merktar inn á OSM upp á rötun.

Þegar maður skoðar erlend OSM kort þar sem maður þekkir til eru gangstéttir
ekki merktar inná en stígar sem ekki liggja meðfram götum eru það. Gæti það
verið svo að einn vandinn við rötun á Íslandi er þessi mikli fjöldi af
gangstéttum sem rötunarvélarnar samþykkja ekki af einhverjum ástæðum? Hvort
sem það er vegna þess að þær tengjast ekki inná götur eða eru ekki með
gangbrautar merktar yfir götuna. Gæti verið að rötunarvélarnar virka þannig
að hægt sé að ganga samsíða öllum götum eða hægt sé að merkja götur með
tagi um gangstéttir=yes? Mér finnst okkur sárlega vanta leiðbeiningar um
þetta efni.



Þann 12. september 2017 kl. 22:15 skrifaði Jóhannes Birgir Jensson <
joi at betra.is>:

> Reyndar virðist hann hafa verið MUN stórtækari en þessar 70 þegar maður
> skoðar þetta!
>
> http://www.openstreetmap.org/user/T%C3%B3mas%20Ingi/history#
> map=12/64.1291/-21.8504
>
>
>
>
> On 12.9.2017 22:12, Jóhannes Birgir Jensson wrote:
>
>> Á Íslandi búum við svo vel að þar má hjóla á gangstéttum.
>>
>> Rötunarvélar OSM skilja það yfirleitt ekki og forðast því gangstéttir
>> þegar hjólaleiðir eru búnar til. Því höfum við kortlagt gangstéttir og sett
>> bicycle=yes eða =permitted eða álíka.
>>
>> Í dag eyddi Tómas Ingi út einum 70 slíkum í þessu changesetti
>> http://www.openstreetmap.org/changeset/51972351#map=13/64.1247/-21.8870
>>
>> og vísar þar í umdeilt skjal á Wiki. Röksemdin er sú að þá sé kortið
>> fallegra...
>>
>> Ég legg til að þessi breyting verði tekin aftur.
>>
>>
>> ---
>> This email has been checked for viruses by Avast antivirus software.
>> https://www.avast.com/antivirus
>>
>>
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is at openstreetmap.org
>> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>



-- 
Árni Davíðsson
arnid65 at gmail.com
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20170913/4389eced/attachment.html>


More information about the Talk-is mailing list