[Talk-is] Ærslabelgir
Sveinn í Felli
sv1 at fellsnet.is
Thu Aug 6 07:03:16 UTC 2020
Staðsetning ærslabelgjanna á belgir.eggald.in er oft ekki mjög nákvvæm,
altént þeirra sem ég kannast við hér norðanlands. Hvað er raunhæft að
miða við, vitandi að tengd leiksvæði eru endurhönnuð* reglulega?
Reyndar er ekki hlaupið að því að færa þessa belgi, það er kostnaður sem
mörg smærri sveitarfélög myndu reyna eftir megni að forðast.
Ætti að láta merkingu belgjanna tengjast viðkomandi leiksvæði án þess að
eltast við nákvæma teikningu, eða hafa þetta sem næst raunstaðsetningu í
dag?
bkv,
Sveinn í Felli
*: Sundlaugargaðurinn á Akureyri virðist vera stokkaður upp á sirka
15-20 ára fresti.
Þann 31.7.2020 21:38, skrifaði Jóhannes Birgir Jensson:
> Sæl verið þið
>
> Einhver er búinn að búa til ærslabelgjakort eftir minni - gögnin eru ekki til staðar á OSM að mestu
> og ég er því að bæta við þeim sem ég veit um.
>
> Fyrir belginn sjálfann notum við playground=cushion (ég set punkt) og hann er oftast innan svæðis
> sem er leisure=playground
>
> Ærslabelgjakortið: https://belgir.eggald.in (https://belgir.eggald.in/)
>
> Leikvellir https://wiki.openstreetmap.org/wiki/Key:playground (https://wiki.openstreetmap.org/wiki/Key:playground)
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
More information about the Talk-is
mailing list