[Talk-is] Ærslabelgir
Svavar Kjarrval
svavar at kjarrval.is
Sat Aug 8 15:04:19 UTC 2020
Hæ.
Ef við þekkjum fólk sem býr rétt hjá og gæti án mikilla vandræða skráð
GPS hnit gætum við beðið það um að fara í smá verkefni. Persónulega
myndi ég mæla með því að taka hnit fyrir hvert horn, og síðan væri hægt
að skrá viðkomandi ærslabelg sem einn punkt á milli þessara horna eða
sem eitt svæði (fer eftir gæðum hnitanna og nennu). Sé þessi kostur ekki
fyrir hendi, þá væri í lagi mín vegna að setja inn grófa staðsetningu á
meðan hún er ekki algert gisk.
Ein „dummy-leið“ í þessum efnum í snjallsímum er að biðja fólk um að
setja upp forrit eins og „GPS Status & Toolbox“
(https://play.google.com/store/apps/details?id=com.eclipsim.gpsstatus2),
hafa það í forgrunni þar til skekkjumörkin eru komin niður í fáeina
metra (helst ekki fleiri en 5). Síðan myndi viðkomandi fara að einu
horninu, taka skjáskot, fara að næsta horni, taka skjáskot, og svo áfram
þar til öll hornin eru komin. Síðan gæti viðkomandi annað hvort skráð
hnitin niður og sent, eða einfaldlega sent skjáskotin yfir. Þetta gæti
gagnast fyrir ærslabelgi í sveitarfélögum sem hafa ekki virka OSM notendur.
(Einnig hægt, á eigin ábyrgð, að taka slíkt skjáskot á meðan viðkomandi
er á miðjum ærslabelgnum.)
Með kveðju,
Svavar Kjarrval
On 6.8.2020 07:03, Sveinn í Felli wrote:
> Staðsetning ærslabelgjanna á belgir.eggald.in er oft ekki mjög
> nákvvæm, altént þeirra sem ég kannast við hér norðanlands. Hvað er
> raunhæft að miða við, vitandi að tengd leiksvæði eru endurhönnuð*
> reglulega?
>
> Reyndar er ekki hlaupið að því að færa þessa belgi, það er kostnaður
> sem mörg smærri sveitarfélög myndu reyna eftir megni að forðast.
>
> Ætti að láta merkingu belgjanna tengjast viðkomandi leiksvæði án þess
> að eltast við nákvæma teikningu, eða hafa þetta sem næst
> raunstaðsetningu í dag?
>
> bkv,
> Sveinn í Felli
>
> *: Sundlaugargaðurinn á Akureyri virðist vera stokkaður upp á sirka
> 15-20 ára fresti.
>
> Þann 31.7.2020 21:38, skrifaði Jóhannes Birgir Jensson:
>> Sæl verið þið
>>
>> Einhver er búinn að búa til ærslabelgjakort eftir minni - gögnin eru
>> ekki til staðar á OSM að mestu
>> og ég er því að bæta við þeim sem ég veit um.
>>
>> Fyrir belginn sjálfann notum við playground=cushion (ég set punkt) og
>> hann er oftast innan svæðis
>> sem er leisure=playground
>>
>> Ærslabelgjakortið: https://belgir.eggald.in (https://belgir.eggald.in/)
>>
>> Leikvellir https://wiki.openstreetmap.org/wiki/Key:playground
>> (https://wiki.openstreetmap.org/wiki/Key:playground)
>>
>>
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is at openstreetmap.org
>> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
More information about the Talk-is
mailing list