[Talk-is] Hittingur OSM-IS samfélagsins

l33t.79 at gmail.com l33t.79 at gmail.com
Sat Dec 16 15:41:59 UTC 2023


Hæ hæ gott fólk

Hvenær er næsti hittingur hjá okkur?

Ættum við að kannski halda þorrablót núna eftir jólatörnina saman og bjóða
öllu OSM samfélaginu á íslandi saman, við gætum jafnvel sett upp opið boð
fyrir erlenda OSM gesti til að koma í heimsókn, t.d. frá Skandinavíu og frá
öðrum stóðum.

Þetta gæti orðið árlegur viðburður.

Spurningin hvaða form við setjum á þetta, fer eftir áhuga, og svo hvaða
þjónusta er í boði. Veggspjalda opnun gæti laðað að nokkra spennandi gesti.
Þau sem vilja setja upp veggspjöld með einhverju áhugaverðu sem þau hafa
verið að skoða eða gera. Þá er hægt að kalla stimpla þetta sem akademískt
*symposium** og það getur gefið akafemíska punkta fyrir prófessora og
starfslið í háskólum að setja veggspjald upp á formlegu symposium. Það
myndi þá vera í c.a. hálftíma fyrir mat, og svo eftir mat væru svo frjálsir
umræðuhópar yfir drykk. Bara einsog gerist náttúrulega á svona hittingum.

Þó við séum fimm (að meðtöldum mökum) og með eitt veggspjald sem ég get
útvegað, þá er þetta success.

En ég vil fá allavegana tvö aðra sjálboðaliða til að mynda framkvæmdastjòrn
fyrir viðburðinn annars er þetta bara kaffihittingur, sem er í góðu lagi
líka.

Hvernig er stemmning fyrir svona viðburði? Það væri gaman að hittast.

Það væri líka hægt að hugsa þetta með orðum hætti. En þetta er innlegg til
að opna umræðu.

Með bestu kveðjum
Kári Gunnarsson landfræðingur og einn af þeim sem sett hafa inn breytingar
og lagfæringar á OSM á Íslandi.


*
symposium
/sĭm-pō′zē-əm/
Nafnorð

1. A meeting or conference for discussion of a topic, especially one in
which the participants form an audience and make presentations.
2. A collection of writings on a particular topic, as in a magazine.
3. A convivial meeting for drinking, music, and intellectual discussion
among the ancient Greeks.

Heimild: The American Heritage Dictionary
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20231216/996acc7d/attachment.htm>


More information about the Talk-is mailing list