[Talk-is] Póstnúmer inn á kortið

Ævar Arnfjörð Bjarmason avarab at gmail.com
Wed Jan 14 21:59:21 GMT 2009


2009/1/14 Daníel Gunnarsson <danielgunnars at gmail.com>:
> Var að hugsa um möguleigar leiðir til að koma póstnúmerum inn á kortið
>
> Inn á vefsíðu Íslandspósts er m.a. póstnúmera og gatnaskrá
> http://www.postur.is/desktopdefault.aspx/tabid-145/
>
> Um notkunarskilmála  segir
> * Leyfð er ótakmörkuð gjaldfrjáls notkun á skránum bæði fyrir
> einstaklinga og fyrirtæki.
> * Skrárnar má fella inn í tölvukerfi til að stuðla að réttri skráningu
> á póstnúmerum, götum og bæjarnöfnum fyrir póstáritanir og
> heimilisföng.
> * Óheimilt er að setja þessar skrár beinnt upp á eigin vefsíðu til
> dreifingar, notið frekar tilvísun á þessa síðu.
>
> Er þetta nóg til þess að við getum notað skránna sem source fyrir póstnúmer?

Ekki eins og þetta er skrifað þarna, þar sem við værum að dreifa þessu
óháð þeim og undir leyfi sem hefur ekki þessa tilteknu skilmála. Það
er samt örruglega hægt að komast að einhverju samkomulagi við póstinn
um þetta fyrst þeir eru svona liberal með þetta til að byrja með.

En varðandi þessar skrár væri mjög svo áhugavert að búa til eitthvað
til að flytja þetta inn á einhvern (hálf)sjálfvirkan máta.


More information about the Talk-is mailing list