[Talk-is] hjólavefsjá.is, DV í dag o.fl.

Thorir Jonsson thorirmar at gmail.com
Fri Aug 20 15:29:49 BST 2010


Þetta lítur vel út.  Það eina sem ég sé sem mætti betur fara er að það
vantar að þýða meters og kilometers yfir á íslensku.  Því miður er ég
ekki á þannig að ég get ekki hjálpað með Hverfisgötuna.

Þetta er annars frábært framtak hjá ykkur.

Bestu kveðjur,
Þórir Már

2010/8/20 Björgvin Ragnarsson <nifgraup at gmail.com>:
> Smá update:
>
> Við Ævar höfum verið í sambandi við RideTheCity sem Gísli Marteinn
> bloggaði um og höfum aðstoðað þá við að þýða síðuna sína, hér er
> statusinn á því, http://is.ridethecity.com/iceland og við beinum
> hjólavefsjá.is þangað mjög fljótlega. Athugasemdir um síðuna eru vel
> þegnar, t.d. eitthvað sem þyrfti að þýða eða rangar þýðingar. Getum
> við gert eitthvað varðandi fallbeygingar á götum?
>
> Og varðandi síðasta póst minn þá væri það mjög hjálplegt ef einhver
> tæki það að sér og stúderaði Hverfisgötuna og setti þennan nýja
> hjólastíg inn (það er dálítið vandasamt verk). Það myndi hjálpa til
> þegar hjólavefsjá byggð á OpenStreetMap verður presenteruð fyrir
> borginni til að sýna hversu sniðugt user generated fyrirkomulag er.
> Það eru auðvitað hjólreiðamennirnir sjálfir sem vita best hvernig
> hjólakortið á að líta út.
>
> kv.
>
> Björgvin
>
> 2010/8/17 Björgvin Ragnarsson <nifgraup at gmail.com>:
>> Ef einhver væri til í að setja inn þennan glænýja hjólastíg væri það
>> mjög hjálplegt.
>>
>> http://visir.is/hjolastigur-a-hverfisgotu/article/2010263738966
>>
>> kv.
>>
>> Björgvin
>>
>> 2010/8/17 Ævar Arnfjörð Bjarmason <avarab at gmail.com>:
>>> 2010/8/17 Davíð Jakobsson <rimmugygur at gmail.com>:
>>>> Þann 16. ágúst 2010 18:33, skrifaði Ævar Arnfjörð Bjarmason
>>>> <avarab at gmail.com>:
>>>>>
>>>>> 2010/8/14 Ævar Arnfjörð Bjarmason <avarab at gmail.com>:
>>>>> > 2010/8/14 Svavar Kjarrval <svavar at kjarrval.is>:
>>>>> >> Ég hef illan grun um að gögnin fyrir hjólavefsjána muni vera fengin úr
>>>>> >> gögnum háð sömu takmörkunum og þau sem borgarvefsjáin er unnin eftir.
>>>>> >> Það
>>>>> >> kæmi mér allavega ekkert á óvart.
>>>>> >
>>>>> > Planið hérna er að fá borgina til að gefa út þessi gögn undir frjálsu
>>>>> > leyfi í staðin fyrir að gera sitt egið verkefni, ég veit ekki hvort
>>>>> > það gengur eftir, en það má vona.
>>>>> >
>>>>> > Gísli Marteinn allavegana virðist jákvæður:
>>>>> >
>>>>> >    http://twitter.com/gislimarteinn/status/21018574846
>>>>> >    http://twitter.com/gislimarteinn/status/21018677592
>>>>> >
>>>>> > Þetta hjólavefsjármál verður tekið fyrir hjá borginni bráðlega, planið
>>>>> > er að vera fyrir þann tíma komnir með hjólavefsjá á Íslensku (byggt á
>>>>> > hugbúnaði sem er til) sem hægt verður að benda á og segja "hérna er
>>>>> > þetta, gjaldfrjálst og aðgengilegt öllum, þið þurfið bara að gefa út
>>>>> > gögnin sem þið egið nú þegar til að gera þetta betra", eða eitthvað
>>>>> > þannig.
>>>>>
>>>>> Þetta verkefni er komið aðeins lengra. Það var keypt lén fyrir þetta:
>>>>>
>>>>>    http://xn--hjlavefsj-81a4q.is/ (eða http://hjolavefsja.is/)
>>>>>
>>>>> Kannski sést þetta ekki því það er enn í ISNIC kerfinu, en hér er
>>>>> afrit þangað til:
>>>>>
>>>>>    http://v.nix.is/~avar/hjolavefsja/
>>>>>
>>>>> Það var líka tekið viðtal við mig út af þessu af DV, það er í blaðinu
>>>>> í dag (16. ágúst 2010) á síðu #4, ég hef ekki enn séð það þannig ég
>>>>> veit ekki hvað stendur þar.
>>>>>
>>>>> _______________________________________________
>>>>> Talk-is mailing list
>>>>> Talk-is at openstreetmap.org
>>>>> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>>>
>>>>
>>>> Flott framtak!
>>>>
>>>> Það er kannski spurning um að gera smá átak í hjólreiðakortinu okkar þar sem
>>>> þetta er að fá svona fína auglýsingu.
>>>
>>> Jú, endilega. Get því miður ekki hjálpað með það beint þar sem ég er
>>> ekki á landinu.
>>>
>>>> Það sem mér finnst hafa stungið sérstaklega útúr er Grafarholtið þar
>>>> sem hver einasti stígur er taggaður sem cycleway. Er einhver sem
>>>> þekkir til þarna sem getur lagað þetta?
>>>
>>> Ég sé ekki betur en að þetta sé rétt, ef það er eitthvað jafngildi
>>> erlendra hjólreiðastíga á Íslandi er það líkast til netið í
>>> grafarholtinu.
>>>
>>>
>>>> Að öðru leyti þá er til pdf skjal frá rvk hér
>>>>
>>>> http://www.rvk.is/Portaldata/1/Resources/framkvaemdasvid/gongu_og_hjolastigar/Uppl-skilti-St_rRvk.pdf
>>>>
>>>> Að mstu leyti er það rétt held ég, þó að ég geti séð nokkrar villur þarna,
>>>> en það er spurning hvort að það megi ekki nota það til viðmununar?
>>>
>>> Þetta er lítið dæmi um gögn sem við erum að reyna fá leyfi til að
>>> nota, þannig við getum ekki notað þetta eins og er.
>>>
>>> En burtséð frá því er þetta skjal nánast ónothæft, ég man ekki hvar ég
>>> heyrði þetta en ég frétti einhverstaðar að þetta hefði fyrst verið
>>> gert fyrir einhverja ráðstefnu Evrópskra borga, þá til að einhver
>>> embættismaðurinn gæti litið vel út úti og auglýst hversu hjólavæn
>>> Reykjavík væri.
>>>
>>> Það getur vel verið að það sé lygi, en það sést ekki annað á þessu
>>> korti. Þessar leiðir eru í engum tengslum við raunveruleikann, þarna
>>> er allt frá ágætis hjólaleiðum (t.d. Skerjafjörðurinn) niður í
>>> venjulegar gangstéttir við götur, síðast þegar ég athugaði var líka
>>> eitthvað af þessu sem fór upp og niður stiga!
>>>
>>> Það eina sem er *ekki* á þessu korti er Langahlíð og kafli Laugarvegar
>>> frá Snorrabraut til Barónsstígs, sem eru einu tvö dæmin um kafla þar
>>> sem reynt hefur verið að búa til pláss fyrir hjólafólk ásamt bíla og
>>> gönguumferð.
>>>
>>> Það flotta við OpenStreetMap er einmitt að við getum búið til *alvöru*
>>> hjólakort sem er með einhver tengsl við raunveruleikann, það þarf bara
>>> að merkja breidd vegsins, hvort umferð er aðskilin, hvernig undirlagið
>>> er o.s.f.
>>>
>>> _______________________________________________
>>> Talk-is mailing list
>>> Talk-is at openstreetmap.org
>>> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>>
>>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>



More information about the Talk-is mailing list