[Talk-is] Nýr notandi, fáeinar sputningar.

Arnar Birgisson arnarbi at gmail.com
Sun Aug 29 09:49:12 BST 2010


Sæll Karl,

2010/8/29 Karl Georg <kalli at ekkert.org>:
> *Þegar ég var að tracka í gær þá skorti mig að geta stillt GPS tækið svo það
> safnaði punktum oftar.  ég slökkti á Decluster (án þess þó að vita hvað það
> þýðir) og fann smá mun og leitaði í settings af eitthvejru þessu tengdu en
> fann ekkert.
> Vandamálið lýsti sér þannig að ég gékk stíg sem ég vildi tracka og út frá
> honum komu nokkrar tengingar við íbúðargötur.  Ég þræddi þær fram og til
> baka en tækið stikaði alltaf beinaleið framhjá þeim öllum. Ég er með "Garmin
> eTrex Legend HCx" Vitið þið um ráð eða stillingu framhjá þessu.

Undir Main Menu ferðu í Tracks, velur þar Settings hnappinn. Á þeirri
valmynd seturðu Record Method á "Time" og Interval á "00hrs 00min
01sec". Þetta gefur þér tíðustu punkta í tracklog sem þetta tæki býður
upp á.

Einn galli er að track-loggurinn fyllist fyrr og ef þú vistar hann
ekki í track, þá taparðu gögnum. Enn fremur strippar þetta tæki tímann
af punktum þegar þú vistar þá, sem skiptir ekki alltaf máli en þú
hefur þá t.d. ekki upplýsingar um hversu hratt þú fórst viðkomandi
track.

Lausn við þessu er að fara í "Data Card Setup" á sömu valmynd
(assuming að þú sért með SD kort í tækinu) og haka þar í "Log Track to
Data Card." Þá verða til .gpx skrár á SD kortinu, ein fyrir hvern dag,
sem þú getur opnað beint í JOSM. Til að lesa þær seturðu annað hvort
kortið í kortalesara, eða tengir GPS tækið með USB og ferð (með
kapalinn tengdan) í Main Menu -> Setup -> Interface og velur eina
hnappinn þar, "USB Mass Storage." Þá dúkkar kortið upp sem drif í
tölvunni hjá þér og þú getur afritað .gpx skránar.

> Annað get ég séð layera í JOSM sem er ekki búið að setja á OSM kortið, eða
> trökk eftir aðra notendur sem er ekki búið að teikna. Hvernig forðast maður
> semsagt að setja inn eitthvað sem aðrir eru að vinna í ? Og hvernig getur ég
> lagt mitt af mörkum með því að vinna úr gögnum sem aðrir hafa lagt inn hvort
> sem það eru prentanlegukortin,trökk eða skráning á götunöfnum. Er til listi
> yfir ókláruð verk ?

Tröckin sem aðrir eru að nota til að teikna eftir eru alla jafnan bara
á þeirra einkatölvum, ekki í OSM grunninum. Varðandi lista yfir
ókláruð verk þá verða aðrir að svara því.

Vona þetta hjálpi.

kv,
Arnar



More information about the Talk-is mailing list