[Talk-is] Osm.is er orðin betri

Svavar Kjarrval svavar at kjarrval.is
Wed Dec 19 16:58:36 GMT 2012


Hæ.

Sá um daginn flotta útfærslu á layers.openstreetmap.fr og spurði þá um
leyfi til að nota/rippa kóðann þeirra. Þar sem leyfið var góðfúslega
veitt hef ég hakkað saman nýja osm.is/openstreetmap.is sem lítur miklu
betur út en áður. Það er eitthvað eftir sem þarf að laga auk þess að
bæta við fleiri lögum/þekjum. Hef í hyggju að setja inn gagnlegar
áherslur og villulög ef ég fæ mapnik til að virka almennilega.

Ætla að laga ákveðna villu sem ég veit af áður en ég tilkynni þetta á
https://www.facebook.com/osmiceland. Ef þið sjáið eitthvað sem þarf að
laga á osm.is, ekki hika við að láta mig vita.

Með kveðju,
Svavar Kjarrval
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20121219/24d19b73/attachment.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: signature.asc
Type: application/pgp-signature
Size: 836 bytes
Desc: OpenPGP digital signature
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20121219/24d19b73/attachment.pgp>


More information about the Talk-is mailing list