[Talk-is] LUKR import - skýrsla
Svavar Kjarrval
svavar at kjarrval.is
Tue Nov 20 00:02:35 GMT 2012
Hæ.
Smá skýrsla um importið stóra. Vil líka minna á Facebook síðu OSM á
Íslandi á https://www.facebook.com/osmiceland .
Bekkir:
Komnir inn. Notaði ekki _STRAETO_ lykilinn þar sem bekkir eru nokkuð oft
mörgum metrum frá staðsetningu hverrar biðstöðvar.
Endurvinnslugámar:
Komnir inn. Merge þar sem var þá þegar.
Grunnskólahverfi:
Sleppti þessu þar sem ég fann engan OSM lykil fyrir grunnskólahverfi.
Einnig sýnist mér ekki vera mikill áhugi fyrir upplýsingunum þessa stundina.
Umferðarljós:
Sleppti þar sem nóðurnar eru staðsetningar umferðarljósanna en OSM
lyklar fyrir umferðarljós gera ráð fyrir að merkja á götunum sjálfum en
ekki þar sem umferðarljósin eru. Einnig sá ég fram á of mikla vinnu við
að laga gatnamót þannig að þetta yrði ekkert eiginlegt import.
Sjálfboðaliðar gætu alveg tekið það að sér að nota gögnin sem viðmið um
hvar umferðarljós eru og lagað gatnamótin um leið.
Heiti hverfa:
Komið inn sem boundary relation, admin_level=10. Ákvað að rekja ekki
eftir götum þrátt fyrir þann möguleika. Þetta er samt eitthvað sem fólk
getur dundað sér við smátt og smátt. Mörkin eru allavega komin inn í
formi boundary relation svo það er ekki stórt mál að leysa af hólmi
línurnar sem ég importaði. Eyddi út place nodes og færði tögin þeirra
yfir í téð boundary relation þar sem við átti. Sjávarlínuaðdáendur
komast einnig í feitt þar sem hverfin eru mörg skilgreind út frá
sjávarlínunni. Var samt ekkert að skipta henni út sjálfur en fyrir þá
sem hafa áhuga, þá eru í boði gögn Reykjavíkurborgar um hvernig hún
liggur að þeirra mati.
Leiksvæði:
Komin inn. Það var ekki eins auðvelt verk að aðlaga línurnar og ég hélt
svo ég skipti sumum leiksvæðunum út fyrir þau sem voru í importinu,
flest þeirra lögð af mér og MisterKanister en okkur báðum var sama þótt
þeim yrði eytt út fyrir okkur leiti. Stundum voru þau skilgreind sem
stærra svæði en þáverandi leiksvæði en í þeim tilvikum gaf ég þeim í
staðinn samsetninguna amenity=park.
Ruslafötur:
Komnar inn. Fann ekkert viðeigandi OSM tag til að skilgreina að
ruslafata væri föst við ljósastaur svo ég lét það vera.
Stjórnsýsluhverfi:
Skilgreindi þau sem admin_level=9 þótt það sé tæknilega séð ekki
skilgreint fyrir Ísland á wiki-síðunni. Setti ekki öll inn en það er
minnsta mál að breyta þeim eða færa þar sem ég skilgreindi þau
einfaldlega eftir sömu línum og í importinu fyrir heiti hverfa.
Bæjarmörk:
Komin inn sem boundary relation, admin_level=6. Giskaði samt fyrir
Hafnarfjörð frá enda línu og að sjó þar sem sú lína var ekki inn á LUKR.
Eins og áður, ekki mikið mál að breyta þegar við fáum betri hnit. Stalst
til að setja þá línu þar sem Nominatim var alltaf að skilgreina að sumar
göturnar í Hafnarfirði tilheyrðu Reykjavík, jafnvel þegar boundary
relation var til fyrir Reykjavík. Eyddi út place=city og place=town
nóðum og færði tögin þeirra yfir í téð boundary relation.
Þetta var áhugavert verkefni og ég er alveg tilbúinn í frekari import.
Þyrfti bara að fá gögnin í hendurna í .shp eða .osm.
Með kveðju,
Svavar Kjarrval
On 10/11/12 17:50, Svavar Kjarrval wrote:
> Hæ.
>
> Fyrst ætla ég að nefna að ég náði að stelast í uppsett Microstation og
> AutoCAD og náði að breyta sumu af því sem við höfum fengið í .dxf eða
> útgáfu 7 af .dgn. Hef ekki í hyggju að umbreyta þeim frekar svo ég bið
> ykkur um að framkvæma það verk. Ég get síðan framkvæmt import ef/þegar
> þeim verður umbreytt í .osm eða .shp. Þessa stundina vil ég einbeita
> mér að klára að öðrum hlutum í OSM.
>
> Umbreyttu skjölin má nálgast á http://osm.is/gogn/ZZ-Umbreytt/ . Ef
> þið umbreytið þeim, endilega látið mig fá afraksturinn svo ég geti
> sett hann á vefsvæðið.
>
> ---
>
> Þá ætla ég að halda áfram að importa LUKR gögnum sem við fengum frá
> Reykjavík. Óunnar útgáfur eru að finna hér:
> http://osm.is/gogn/ZZ-Umbreytt/Reykjav%C3%ADk/ . Tilheyrandi lykla er
> hægt að nálgast með því að opna skrárnar og kíkja. Importin munu fara
> fram 17. nóvember eða síðar. Ég hvet ykkur til að skoða skrárnar og
> sjá hvort það eru gagnlegir lyklar í þeim sem ég tók ekki eftir.
> Einföldustu importin fara fram fyrst og síðan vinn ég í þeim erfiðari.
> Ef þið hafið einhverjar sérstakar óskir um framkvæmdina er best að
> koma þeim á framfæri sem fyrst.
>
> Bekkir (Bekkir.osm):
> 902 nóður í Reykjavík. Eini gagnlegi lykillinn er mögulega _TEGUND_
> sem ég reyni að þýða í viðeigandi OSM lykil. Í fáeinum tilvikum er í
> boði lykillinn _STRAETO_ með öðru gildi en 0. Í þeim tilvikum ég mun
> líklegast láta nægja að setja viðeigandi lykil á biðstöðvarnar sjálfar
> sé það í boði.
>
> Endurvinnslugámar (Endurvinnslugámar.osm):
> 55 nóður í Reykjavík. Enginn gagnlegur lykill að mínu mati til staðar.
> Set viðeigandi OSM lykil á nóðurnar.
>
> Grunnskólahverfi (Grunnskólahverfi.osm):
> Skipting svæða í Reykjavík á einstaka grunnskóla. Held að hér sé um að
> ræða 61 grunnskóla en gætu verið færri. Sé engan gagnlegan lykil þó
> það megi deila um _SKOLANR_. Ef ég finn ekki viðeigandi OSM lykil
> fyrir grunnskólahverfi mun ég sleppa því að setja þetta inn. Gæti haft
> sameiginleg mörk með öðrum hverfaimportum.
>
> Umferðarljós (Götuvitar.osm):
> 1.230 nóður í Reykjavík. Lykillinn _LAGNA_AR_ gæti verið gagnlegur svo
> ég mun finna viðeigandi OSM lykil eða halda honum óbreyttum með
> forskeytinu ,lukr:'. Gæti verið einhver vinna við að bera saman við
> loftmyndir ef OSM hefur mismunandi lykla eða gildi eftir tilgangi
> umferðarljósanna.
>
> Heiti hverfa (Hverfaheiti.osm):
> 74 hverfi í Reykjavík. Eini gagnlegi lykillinn er _HEITI_ sem er heiti
> viðkomandi hverfis. Gögnin fara líklega inn í formi administrative
> border. Í kjölfarið mun ég líklegast fjarlægja nóður sem innihalda
> hverfanöfn þar sem þær væru búnar að gegna hlutverki sínu. Einnig er
> möguleiki að ekkert beint import fari fram og ég myndi rekja
> hverfamörkin eftir þeim götum sem væru þar þá þegar, allavega þar sem
> götur skilgreina hverfamörk.
>
> Leiksvæði (Opin leiksvæði.osm):
> 254 leiksvæði í Reykjavík. Gagnlegir lyklar eru _HEITI_ og
> _NR_LEIKSVA_ sem fá forskeytið ,lukr:'. Mun athuga þá leikvelli sem
> eru þegar skráðir inn og aðlaga þá að þeim nóðum sem fylgja þessari skrá.
>
> Ruslafötur (Ruslastampar.osm):
> 1.196 nóður í Reykjavík. Enginn gagnlegur lykill fyrir utan _TEGUND_
> en fyrir hann mun ég reyna að finna viðeigandi OSM lykil fyrir hverja
> tegund. 372 þeirra eru fastir við ljósastaur og mun ég skoða það hvort
> það sé viðeigandi að bæta einfaldlega við aukalykil við ljósastaurana
> eða hafa í sér nóðu.
>
> Stjórnsýsluhverfi (Stjórnsýsluhverfi.osm):
> 18 stjórnsýsluhlutar í Reykjavík. Hér eru almenn heiti eins og
> Breiðholt, Háaleiti, Grafarvogur og Vesturbær. Grunar að hér sé um að
> ræða heiti sameinaðra hverfa svo mig grunar að ég muni geta notað sömu
> línur og í tengslum við Hverfaheiti.osm importið. Alveg eins og með
> það import mun ég fjarlægja nóður sem skilgreina hverfaheiti (eða
> fjarlægja viðeigandi lykla) þar sem við værum komin með
> svæðisskilgreiningu.
>
> Bæjarmörk (Sveitarfélagsmörk.osm):
> Hef þegar stolist til að "importa" mörk Álftaness og Garðabæjar. Hér
> er um þónokkra vinnu að ræða sem snýst aðallega um að hlaða inn
> viðkomandi svæði inn á OSM og þessu skjali, sameina mörkin og skipa út
> lyklunum fyrir viðeigandi border relation. Þar sem mörkin eru ekki
> samtengd alls staðar er þetta ekki eitthvað sem hægt er að gera með
> einföldu importi. Einnig er ekki gefið sérstaklega upp hver á hvaða
> svæði svo það er eingöngu hægt að setja inn það augljósa.
>
> Með kveðju,
> Svavar Kjarrval
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20121120/6e0cf872/attachment.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: signature.asc
Type: application/pgp-signature
Size: 836 bytes
Desc: OpenPGP digital signature
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20121120/6e0cf872/attachment.pgp>
More information about the Talk-is
mailing list