[Talk-is] LUKR import - skýrsla
Thorir Jonsson
thorirmar at gmail.com
Tue Nov 20 13:23:02 GMT 2012
Þetta er frábært starf sem þú ert að vinna Svavar.
Varðandi skort á OSM lyklum fyrir grunnskólahverfi þá er til einfalt ferli
til að stinga upp á nýjum lyklum. Þessu ferli er lýst hér:
http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Proposed_features. Stærsta vandamálið í
þessu tilfelli væri eflaust að skilgreina nákvæmlega hvað grunnsḱólahverfi
er.
Ég lagði fram svona tillögu fyrir natural=glacier tagið á sínum tíma (
http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Approved_features/Tag:natural%3Dglacier)
og er alveg tilbúinn að aðstoða við þetta ef þú hefur áhuga.
Kv. Þórir Már
2012/11/20 Svavar Kjarrval <svavar at kjarrval.is>
> Hæ.
>
> Smá skýrsla um importið stóra. Vil líka minna á Facebook síðu OSM á
> Íslandi á https://www.facebook.com/osmiceland .
>
> Bekkir:
> Komnir inn. Notaði ekki _STRAETO_ lykilinn þar sem bekkir eru nokkuð oft
> mörgum metrum frá staðsetningu hverrar biðstöðvar.
>
> Endurvinnslugámar:
> Komnir inn. Merge þar sem var þá þegar.
>
> Grunnskólahverfi:
> Sleppti þessu þar sem ég fann engan OSM lykil fyrir grunnskólahverfi.
> Einnig sýnist mér ekki vera mikill áhugi fyrir upplýsingunum þessa stundina.
>
> Umferðarljós:
> Sleppti þar sem nóðurnar eru staðsetningar umferðarljósanna en OSM lyklar
> fyrir umferðarljós gera ráð fyrir að merkja á götunum sjálfum en ekki þar
> sem umferðarljósin eru. Einnig sá ég fram á of mikla vinnu við að laga
> gatnamót þannig að þetta yrði ekkert eiginlegt import. Sjálfboðaliðar gætu
> alveg tekið það að sér að nota gögnin sem viðmið um hvar umferðarljós eru
> og lagað gatnamótin um leið.
>
> Heiti hverfa:
> Komið inn sem boundary relation, admin_level=10. Ákvað að rekja ekki eftir
> götum þrátt fyrir þann möguleika. Þetta er samt eitthvað sem fólk getur
> dundað sér við smátt og smátt. Mörkin eru allavega komin inn í formi
> boundary relation svo það er ekki stórt mál að leysa af hólmi línurnar sem
> ég importaði. Eyddi út place nodes og færði tögin þeirra yfir í téð
> boundary relation þar sem við átti. Sjávarlínuaðdáendur komast einnig í
> feitt þar sem hverfin eru mörg skilgreind út frá sjávarlínunni. Var samt
> ekkert að skipta henni út sjálfur en fyrir þá sem hafa áhuga, þá eru í boði
> gögn Reykjavíkurborgar um hvernig hún liggur að þeirra mati.
>
> Leiksvæði:
> Komin inn. Það var ekki eins auðvelt verk að aðlaga línurnar og ég hélt
> svo ég skipti sumum leiksvæðunum út fyrir þau sem voru í importinu, flest
> þeirra lögð af mér og MisterKanister en okkur báðum var sama þótt þeim yrði
> eytt út fyrir okkur leiti. Stundum voru þau skilgreind sem stærra svæði en
> þáverandi leiksvæði en í þeim tilvikum gaf ég þeim í staðinn samsetninguna
> amenity=park.
>
> Ruslafötur:
> Komnar inn. Fann ekkert viðeigandi OSM tag til að skilgreina að ruslafata
> væri föst við ljósastaur svo ég lét það vera.
>
> Stjórnsýsluhverfi:
> Skilgreindi þau sem admin_level=9 þótt það sé tæknilega séð ekki
> skilgreint fyrir Ísland á wiki-síðunni. Setti ekki öll inn en það er
> minnsta mál að breyta þeim eða færa þar sem ég skilgreindi þau einfaldlega
> eftir sömu línum og í importinu fyrir heiti hverfa.
>
> Bæjarmörk:
> Komin inn sem boundary relation, admin_level=6. Giskaði samt fyrir
> Hafnarfjörð frá enda línu og að sjó þar sem sú lína var ekki inn á LUKR.
> Eins og áður, ekki mikið mál að breyta þegar við fáum betri hnit. Stalst
> til að setja þá línu þar sem Nominatim var alltaf að skilgreina að sumar
> göturnar í Hafnarfirði tilheyrðu Reykjavík, jafnvel þegar boundary relation
> var til fyrir Reykjavík. Eyddi út place=city og place=town nóðum og færði
> tögin þeirra yfir í téð boundary relation.
>
> Þetta var áhugavert verkefni og ég er alveg tilbúinn í frekari import.
> Þyrfti bara að fá gögnin í hendurna í .shp eða .osm.
>
> Með kveðju,
> Svavar Kjarrval
>
> On 10/11/12 17:50, Svavar Kjarrval wrote:
>
> Hæ.
>
> Fyrst ætla ég að nefna að ég náði að stelast í uppsett Microstation og
> AutoCAD og náði að breyta sumu af því sem við höfum fengið í .dxf eða
> útgáfu 7 af .dgn. Hef ekki í hyggju að umbreyta þeim frekar svo ég bið
> ykkur um að framkvæma það verk. Ég get síðan framkvæmt import ef/þegar þeim
> verður umbreytt í .osm eða .shp. Þessa stundina vil ég einbeita mér að
> klára að öðrum hlutum í OSM.
>
> Umbreyttu skjölin má nálgast á http://osm.is/gogn/ZZ-Umbreytt/ . Ef þið
> umbreytið þeim, endilega látið mig fá afraksturinn svo ég geti sett hann á
> vefsvæðið.
>
> ---
>
> Þá ætla ég að halda áfram að importa LUKR gögnum sem við fengum frá
> Reykjavík. Óunnar útgáfur eru að finna hér:
> http://osm.is/gogn/ZZ-Umbreytt/Reykjav%C3%ADk/ . Tilheyrandi lykla er
> hægt að nálgast með því að opna skrárnar og kíkja. Importin munu fara fram
> 17. nóvember eða síðar. Ég hvet ykkur til að skoða skrárnar og sjá hvort
> það eru gagnlegir lyklar í þeim sem ég tók ekki eftir. Einföldustu importin
> fara fram fyrst og síðan vinn ég í þeim erfiðari. Ef þið hafið einhverjar
> sérstakar óskir um framkvæmdina er best að koma þeim á framfæri sem fyrst.
>
> Bekkir (Bekkir.osm):
> 902 nóður í Reykjavík. Eini gagnlegi lykillinn er mögulega _TEGUND_ sem ég
> reyni að þýða í viðeigandi OSM lykil. Í fáeinum tilvikum er í boði
> lykillinn _STRAETO_ með öðru gildi en 0. Í þeim tilvikum ég mun líklegast
> láta nægja að setja viðeigandi lykil á biðstöðvarnar sjálfar sé það í boði.
>
> Endurvinnslugámar (Endurvinnslugámar.osm):
> 55 nóður í Reykjavík. Enginn gagnlegur lykill að mínu mati til staðar. Set
> viðeigandi OSM lykil á nóðurnar.
>
> Grunnskólahverfi (Grunnskólahverfi.osm):
> Skipting svæða í Reykjavík á einstaka grunnskóla. Held að hér sé um að
> ræða 61 grunnskóla en gætu verið færri. Sé engan gagnlegan lykil þó það
> megi deila um _SKOLANR_. Ef ég finn ekki viðeigandi OSM lykil fyrir
> grunnskólahverfi mun ég sleppa því að setja þetta inn. Gæti haft
> sameiginleg mörk með öðrum hverfaimportum.
>
> Umferðarljós (Götuvitar.osm):
> 1.230 nóður í Reykjavík. Lykillinn _LAGNA_AR_ gæti verið gagnlegur svo ég
> mun finna viðeigandi OSM lykil eða halda honum óbreyttum með forskeytinu
> ‚lukr:‘. Gæti verið einhver vinna við að bera saman við loftmyndir ef OSM
> hefur mismunandi lykla eða gildi eftir tilgangi umferðarljósanna.
>
> Heiti hverfa (Hverfaheiti.osm):
> 74 hverfi í Reykjavík. Eini gagnlegi lykillinn er _HEITI_ sem er heiti
> viðkomandi hverfis. Gögnin fara líklega inn í formi administrative border.
> Í kjölfarið mun ég líklegast fjarlægja nóður sem innihalda hverfanöfn þar
> sem þær væru búnar að gegna hlutverki sínu. Einnig er möguleiki að ekkert
> beint import fari fram og ég myndi rekja hverfamörkin eftir þeim götum sem
> væru þar þá þegar, allavega þar sem götur skilgreina hverfamörk.
>
> Leiksvæði (Opin leiksvæði.osm):
> 254 leiksvæði í Reykjavík. Gagnlegir lyklar eru _HEITI_ og _NR_LEIKSVA_
> sem fá forskeytið ‚lukr:‘. Mun athuga þá leikvelli sem eru þegar skráðir
> inn og aðlaga þá að þeim nóðum sem fylgja þessari skrá.
>
> Ruslafötur (Ruslastampar.osm):
> 1.196 nóður í Reykjavík. Enginn gagnlegur lykill fyrir utan _TEGUND_ en
> fyrir hann mun ég reyna að finna viðeigandi OSM lykil fyrir hverja tegund.
> 372 þeirra eru fastir við ljósastaur og mun ég skoða það hvort það sé
> viðeigandi að bæta einfaldlega við aukalykil við ljósastaurana eða hafa í
> sér nóðu.
>
> Stjórnsýsluhverfi (Stjórnsýsluhverfi.osm):
> 18 stjórnsýsluhlutar í Reykjavík. Hér eru almenn heiti eins og Breiðholt,
> Háaleiti, Grafarvogur og Vesturbær. Grunar að hér sé um að ræða heiti
> sameinaðra hverfa svo mig grunar að ég muni geta notað sömu línur og í
> tengslum við Hverfaheiti.osm importið. Alveg eins og með það import mun ég
> fjarlægja nóður sem skilgreina hverfaheiti (eða fjarlægja viðeigandi lykla)
> þar sem við værum komin með svæðisskilgreiningu.
>
> Bæjarmörk (Sveitarfélagsmörk.osm):
> Hef þegar stolist til að "importa" mörk Álftaness og Garðabæjar. Hér er um
> þónokkra vinnu að ræða sem snýst aðallega um að hlaða inn viðkomandi svæði
> inn á OSM og þessu skjali, sameina mörkin og skipa út lyklunum fyrir
> viðeigandi border relation. Þar sem mörkin eru ekki samtengd alls staðar er
> þetta ekki eitthvað sem hægt er að gera með einföldu importi. Einnig er
> ekki gefið sérstaklega upp hver á hvaða svæði svo það er eingöngu hægt að
> setja inn það augljósa.
>
> Með kveðju,
> Svavar Kjarrval
>
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
>
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20121120/e9160aac/attachment.html>
More information about the Talk-is
mailing list