[Talk-is] Fundarboð: Stofnfundur félags um opin og frjáls landupplýsingagögn
Jóhannes Birgir Jensson
joi at betra.is
Tue Oct 15 19:38:10 UTC 2013
Búið að stofna rás varðandi íslenska hluta OSM á irc://irc.oftc.net:6667
http://www.oftc.net/
Rásin er #osm-is í samræmi við aðrar #osm rásir þar. Hægt er að tengjast
með hefðbundnum IRC-client eða með WebChat í browser:
http://webchat.oftc.net/
Nick: Þitt nafn
Channel: #osm-is
Gert er ráð fyrir því að á fundinum verði þessi rás vöktuð og þeir sem
þar eru staddir geti tekið þátt.
Þann 15.10.2013 16:12, skrifaði Svavar Kjarrval:
> Hér með er formlega boðað til stofnfundar félags sem hefur þann
> tilgang að vera í forsvari fyrir málstað opinna og frjálsra
> landupplýsingagagna eins og þau sem OpenStreetMap heldur utan um.
> Stofnfundurinn mun eiga sér stað í salnum Kórinn á 1. hæð Bókasafns
> Kópavogs[1] fimmtudaginn 24. október 2013 klukkan 17-19. Open Access
> vikan er 21. til 27. október og er táknræn fyrir það sem félagið mun
> standa fyrir.
>
> Nafn félagsins er ekki fastslegið og er opið fyrir tillögur þar til
> stofnfundur tekur ákvörðun. Þær tillögur sem hafa borist eru:
> Almenna kortafélagið
> Almenna landupplýsingafélagið
> Hið Almenna land[a]fræðifélag (HAL)
>
> Meðfylgjandi eru drög að samþykktum félagsins en þær gætu tekið
> breytingum í meðförum stofnfundar.
>
> [1]
> http://www.openstreetmap.org/?mlat=64.11163&mlon=-21.90930#map=17/64.11163/-21.90930
>
> Með kveðju,
> Svavar Kjarrval
>
> --------------------------------------
> Drög að lögum félagsins:
>
> 1. gr.
> Félagið heitir ...
>
> 2. gr.
> Heimili félagsins og varnarþing er lögheimili formanneskju félagsins.
>
> 3. gr.
> Tilgangur félagsins er að vera í forsvari fyrir málstað opinna og
> frjálsra landupplýsingagagna.
>
> 4. gr.
> Tilgangi sínum hyggst félagið ná með almennum kynningum á málstaðnum
> ásamt samskiptum við hið opinbera og aðra aðila eftir því sem þörf er á.
>
> 5. gr.
> Rétt á að ganga í félagið eiga allir þeir sem eru hlynntir markmiðum
> þess. Skráning í félagið skal ætíð vera í boði.
>
> 6. gr.
> Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera
> upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn hafa atkvæðisrétt á
> aðalfundi en allir skulu hafa málfrelsi og tillögurétt.
>
> 7. gr.
> Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. júní ár hvert og skal boða til
> hans með að minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti, sem
> meðal annars telst sem tilkynning send á netföng félagsmanna.
> Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Ef aðalfundur telst
> ekki löglega boðaður skal boða til nýs aðalfundar að viku liðinni.
> Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála.
>
> Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
> 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
> 2. Skýrsla stjórnar lögð fram
> 3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
> 4. Lagabreytingar
> 5. Ákvörðun félagsgjalds
> 6. Kosning stjórnar
> 7. Önnur mál
>
> Heimilt er að leyfa félagsmönnum að taka þátt í aðalfundarstörfum og
> greiða atkvæði með rafrænum hætti. Þátttaka með rafrænum hætti telst
> mæting. Stjórn setur nánari reglur um framkvæmd rafrænna kosninga.
>
> 8. gr.
> Stjórn félagsins skal skipuð 3 félagsmönnum, formanneskju og 2
> meðstjórnendum, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Stjórnin
> skiptir með sér verkum. Stjórn félagsins fer með málefni félagsins
> milli aðalfunda. Formanneskja boðar til funda. Firmaritun og prókúra
> er í höndum meirihluta stjórnar.
>
> 9. gr.
> Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi. Greiðsla þeirra skal
> vera valkvæð. Félaginu er heimilt að taka við styrkjum ásamt því að
> standa í sölu á vöru eða þjónustu í þeim tilgangi að fjármagna
> starfsemi þess.
>
> 10. gr.
> Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið í samræmi
> við tilgang félagsins. Sé hann ekki allur nýttur á einu starfstímabili
> skal afgangurinn flytjast yfir á það næsta.
>
> 11. gr.
> Lagabreytingar skulu eingöngu eiga sér stað á aðalfundi. Tillögur um
> lagabreytingar skulu hafa borist stjórn félagsins 10 dögum fyrir
> aðalfund. Þær skulu sendar félagsmönnum í tölvupósti með minnst viku
> fyrirvara fyrir aðalfund. Þær skulu eingöngu teljast samþykktar ef þær
> teljast löglega kynntar og hljóta 2/3 hluta atkvæða þeirra félagsmanna
> sem mættir eru á löglegan aðalfund.
>
> 12. gr.
> Ákvörðun um slit félagsins verður eingöngu tekin á aðalfundi með
> einföldum meirihluta atkvæða. Skulu eignir þess að frádregnum skuldum
> vera færðar til Félags um Stafrænt Frelsi á Íslandi til varðveislu þar
> til annað félag er stofnað sem telst vera sannarlegur arftaki félagsins.
>
> Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi félagsins.
> Dagsetning: 24.10.2013.
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is at openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20131015/3f9f75bf/attachment-0001.html>
More information about the Talk-is
mailing list