[Talk-is] Fundarboð: Stofnfundur félags um opin og frjáls landupplýsingagögn
Svavar Kjarrval
svavar at kjarrval.is
Tue Oct 15 16:12:03 UTC 2013
Hér með er formlega boðað til stofnfundar félags sem hefur þann tilgang
að vera í forsvari fyrir málstað opinna og frjálsra landupplýsingagagna
eins og þau sem OpenStreetMap heldur utan um. Stofnfundurinn mun eiga
sér stað í salnum Kórinn á 1. hæð Bókasafns Kópavogs[1] fimmtudaginn 24.
október 2013 klukkan 17-19. Open Access vikan er 21. til 27. október og
er táknræn fyrir það sem félagið mun standa fyrir.
Nafn félagsins er ekki fastslegið og er opið fyrir tillögur þar til
stofnfundur tekur ákvörðun. Þær tillögur sem hafa borist eru:
Almenna kortafélagið
Almenna landupplýsingafélagið
Hið Almenna land[a]fræðifélag (HAL)
Meðfylgjandi eru drög að samþykktum félagsins en þær gætu tekið
breytingum í meðförum stofnfundar.
[1]
http://www.openstreetmap.org/?mlat=64.11163&mlon=-21.90930#map=17/64.11163/-21.90930
Með kveðju,
Svavar Kjarrval
--------------------------------------
Drög að lögum félagsins:
1. gr.
Félagið heitir ...
2. gr.
Heimili félagsins og varnarþing er lögheimili formanneskju félagsins.
3. gr.
Tilgangur félagsins er að vera í forsvari fyrir málstað opinna og
frjálsra landupplýsingagagna.
4. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með almennum kynningum á málstaðnum
ásamt samskiptum við hið opinbera og aðra aðila eftir því sem þörf er á.
5. gr.
Rétt á að ganga í félagið eiga allir þeir sem eru hlynntir markmiðum
þess. Skráning í félagið skal ætíð vera í boði.
6. gr.
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera
upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn hafa atkvæðisrétt á aðalfundi
en allir skulu hafa málfrelsi og tillögurétt.
7. gr.
Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. júní ár hvert og skal boða til hans
með að minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti, sem meðal
annars telst sem tilkynning send á netföng félagsmanna. Aðalfundur er
löglegur, sé rétt til hans boðað. Ef aðalfundur telst ekki löglega
boðaður skal boða til nýs aðalfundar að viku liðinni. Einfaldur
meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar
7. Önnur mál
Heimilt er að leyfa félagsmönnum að taka þátt í aðalfundarstörfum og
greiða atkvæði með rafrænum hætti. Þátttaka með rafrænum hætti telst
mæting. Stjórn setur nánari reglur um framkvæmd rafrænna kosninga.
8. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð 3 félagsmönnum, formanneskju og 2
meðstjórnendum, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Stjórnin
skiptir með sér verkum. Stjórn félagsins fer með málefni félagsins
milli aðalfunda. Formanneskja boðar til funda. Firmaritun og prókúra
er í höndum meirihluta stjórnar.
9. gr.
Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi. Greiðsla þeirra skal
vera valkvæð. Félaginu er heimilt að taka við styrkjum ásamt því að
standa í sölu á vöru eða þjónustu í þeim tilgangi að fjármagna starfsemi
þess.
10. gr.
Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið í samræmi við
tilgang félagsins. Sé hann ekki allur nýttur á einu starfstímabili skal
afgangurinn flytjast yfir á það næsta.
11. gr.
Lagabreytingar skulu eingöngu eiga sér stað á aðalfundi. Tillögur um
lagabreytingar skulu hafa borist stjórn félagsins 10 dögum fyrir
aðalfund. Þær skulu sendar félagsmönnum í tölvupósti með minnst viku
fyrirvara fyrir aðalfund. Þær skulu eingöngu teljast samþykktar ef þær
teljast löglega kynntar og hljóta 2/3 hluta atkvæða þeirra félagsmanna
sem mættir eru á löglegan aðalfund.
12. gr.
Ákvörðun um slit félagsins verður eingöngu tekin á aðalfundi með
einföldum meirihluta atkvæða. Skulu eignir þess að frádregnum skuldum
vera færðar til Félags um Stafrænt Frelsi á Íslandi til varðveislu þar
til annað félag er stofnað sem telst vera sannarlegur arftaki félagsins.
Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi félagsins.
Dagsetning: 24.10.2013.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20131015/db3b3ff9/attachment.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: signature.asc
Type: application/pgp-signature
Size: 836 bytes
Desc: OpenPGP digital signature
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20131015/db3b3ff9/attachment.pgp>
More information about the Talk-is
mailing list