[Talk-is] Eyðing gangstétta sem sérleiða
Morten Lange
morten7an at yahoo.com
Wed Sep 13 12:04:43 UTC 2017
Tek undir með ykkur báðum.
En er ekki viss um hvernig sé best að gera þetta. Ættum við að gera nokkrar tilraunir og sýna hvort öðrum?
Varðandi að notandi hafi hent út gangstéttir, þá finnst mér rétt að bakka með breytinguna. Jafnvel þótt við ákveðum etv seinna að fjarlægja þá _og_ bæta við tagi á götunni sem segir að hér sé gangstétt.
-- Regards / Kveðja / Hilsen Morten Lange
On Wednesday, 13 September 2017, 02:35:56 CEST, Arni Davidsson <arnid65 at gmail.com> wrote:
Mér finnst við þurfa að komast til botns í því hvort að það sé til bóta að hafa gangstéttir merktar inn á OSM upp á rötun.
Þegar maður skoðar erlend OSM kort þar sem maður þekkir til eru gangstéttir ekki merktar inná en stígar sem ekki liggja meðfram götum eru það. Gæti það verið svo að einn vandinn við rötun á Íslandi er þessi mikli fjöldi af gangstéttum sem rötunarvélarnar samþykkja ekki af einhverjum ástæðum? Hvort sem það er vegna þess að þær tengjast ekki inná götur eða eru ekki með gangbrautar merktar yfir götuna. Gæti verið að rötunarvélarnar virka þannig að hægt sé að ganga samsíða öllum götum eða hægt sé að merkja götur með tagi um gangstéttir=yes? Mér finnst okkur sárlega vanta leiðbeiningar um þetta efni.
Þann 12. september 2017 kl. 22:15 skrifaði Jóhannes Birgir Jensson <joi at betra.is>:
Reyndar virðist hann hafa verið MUN stórtækari en þessar 70 þegar maður skoðar þetta!
http://www.openstreetmap.org/u ser/T%C3%B3mas%20Ingi/history# map=12/64.1291/-21.8504
On 12.9.2017 22:12, Jóhannes Birgir Jensson wrote:
Á Íslandi búum við svo vel að þar má hjóla á gangstéttum.
Rötunarvélar OSM skilja það yfirleitt ekki og forðast því gangstéttir þegar hjólaleiðir eru búnar til. Því höfum við kortlagt gangstéttir og sett bicycle=yes eða =permitted eða álíka.
Í dag eyddi Tómas Ingi út einum 70 slíkum í þessu changesetti http://www.openstreetmap.org/c hangeset/51972351#map=13/64.12 47/-21.8870
og vísar þar í umdeilt skjal á Wiki. Röksemdin er sú að þá sé kortið fallegra...
Ég legg til að þessi breyting verði tekin aftur.
---
This email has been checked for viruses by Avast antivirus software.
https://www.avast.com/antiviru s
______________________________ _________________
Talk-is mailing list
Talk-is at openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.or g/listinfo/talk-is
______________________________ _________________
Talk-is mailing list
Talk-is at openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.or g/listinfo/talk-is
--
Árni Davíðsson
arnid65 at gmail.com
_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is at openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/attachments/20170913/e2df2b2d/attachment.html>
More information about the Talk-is
mailing list